
Borgarnes, en á myndinni má sjá hluta þess svæðis sem um ræðir. Ljósm. mm.
Skipuleggja þéttingu byggðar í Borgarnesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 12. maí síðastliðinn tillögu til auglýsingar vegna deiliskipulags við Dílatanga og nærsvæði í Borgarnesi. Tillagan er unnin af Einari Ingimarssyni arkitekt og nær yfir göturnar Dílahæð, Þórðargötu, Kveldúlfsgötu, Ánahlíð og hluta Borgarbrautar. Svæðið er að mestu íbúðahverfi þar sem eru fyrir 134 íbúðum.\r\n\r\nVið Kveldúlfsgötu er gert ráð fyrir nýju fjölbýlishúsi, þar sem nú er opið svæði við enda götunnar uppi við Þórðargötu. Fallið verður hins vegar frá skipulagi sem gert var árið 2007 um fjölbýlishús að Kveldúlfsgötu 29. Þar verður þess í stað áfram opið svæði að sjávarmáli, með útsýni að kirkjustaðnum Borg á Mýrum og um það mun liggja hluti samgöngustígs meðfram strönd. Við Þórðargötu eru tvær nýjar lóðir teiknaðar, við enda götunnar Borgarbrautarmegin.\r\n\r\nÍ tillögunni er gert ráð fyrir að lóðirnar Borgarbraut 61 og Kveldúlfsgata 2B verði sameinaðar. Reiknað er með að núverandi hús á Kveldúlfsgötu 2B (fyrrum kartöflugeymsla og aðstaða fyrir félagsstarf) verði fjarlægt og í stað þess byggt fjölbýlishús, sem tengist húsinu á Borgarbraut 61, sem heimilt verður að stækka. Lóðin Borgarbraut 63 verður stækkuð, núverandi hús fjarlægt og í stað þess gert ráð fyrir fjölbýlishúsi.",
"innerBlocks": []
}