Séð inn í húsnæði yngsta stigsins á 2. hæð skólans. Allt hefur verið hreinsað út og er í raun tilbúið undir tréverk.

„Vinnum eftir áætlun sem við erum mjög ánægð með“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í mars árið 2021 var haldinn kynningarfundur um skýrslu Verkís um úttekt á húsnæði Grundaskóla á Akranesi en hún var unnin vegna grunsemda um ónóg loftgæði í skólanum. Helstu niðurstöður úttektarinnar voru að rakaskemmdir höfðu fundist í húsnæði skólans og sumstaðar höfðu þær leitt til myglu. Þá var gömul glerull ásamt ágöllum á rakavarnarlagi stór orsakavaldur að lélegri loftgæðum en rykagnir bárust frá glerullinni þar sem húsnæðið var óþétt.\r\n\r\nSigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri Grundaskóla fór á fundinum yfir ástæður þess að óskað var eftir úttektinni og rakti í ítarlegu máli viðbrögð skólans. Grunsemdir vöknuðu fyrst á haustdögum vegna ítrekaðra athugasemda frá starfsmönnum og nemendum. Í nóvember og desember var úttektin undirbúin og hún fór svo fram dagana 10. til 16. febrúar. Það var svo í byrjun mars að aðgerðaáætlun skólans var virkjuð og tekin ákvörðun um að loka stórum hlutum skólans og stokka upp skólastarfið með tilliti til þess. Alls þurfti að flytja stóran hluta nemenda í húsnæði utan skólans, svo sem í Þorpið og Arnardal, frístundamiðstöðina við Garðavöll, tónlistarskólann og fjölbrautaskólann. Alls hefur skólinn þurft að loka 22 skólastofum eða um tveimur þriðju af því rými sem hann hefur yfir að ráða.\r\n\r\n<em>Sjá nánar um stöðu verksins í Skessuhorni í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
„Vinnum eftir áætlun sem við erum mjög ánægð með“ - Skessuhorn