Fréttir

true

Bæta aðgengi að fossinum Glym

Við úthlutun styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í síðustu viku kom fram að Hvalfjarðarsveit hlýtur 3,5 milljónir króna. Styrkurinn mun fara til að bæta aðgengi og öryggi á gönguleiðinni að fossinum Glymi í botni Hvalfjarðar. Eins og kunnugt er slasa fjölmargir ferðamenn sig á hverju ári við göngu að fossinum og því talið brýnt að bæta…Lesa meira

true

Styrkur til að bæta aðgengi að Drápuhlíðarfjalli

Við úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í liðinni viku var Sif Matthíasdóttir veittur styrkur að upphæð tæpar 4,4 milljónir króna til að vinna skipulag, hönnun og merkingar vegna ferðamennsku á og við Drápuhlíðarfjall í Helgafellssveit. Nánar tilgreint felur styrkurinn í sér öflun upplýsinga, skipulagsvinnu, stikun/merkingu gönguleiða og uppsetningu kynningarspjalda við fjallið. Deiliskipulagstillaga verður unnin fyrir afmarkað…Lesa meira

true

Bæta aðgengi að Bjarnarfossi

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur úthlutað Snæfellsbæ um 3,7 milljónum króna í hönnunarstyrk til að bæta vegvísun, upplýsingagjöf og öryggi á áningarstaðnum við Bjarnarfoss. Verkefnið á að koma í veg fyrir skemmdir á náttúru og auka öryggi ferðamanna. „Það bætir virkni staðarins og fellur því vel að áherslum Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða,“ segir í umsögn.Lesa meira

true

Þrír styrkir til Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar ýmsar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila í landinu. Úthlutað hefur verið styrkjum úr sjóðnum fyrir árið 2022. Að þessu sinni var úthlutað 548 milljónum króna. Þrír af þeim styrkjum sem úthlutað er að þessu sinni fara til verkefna á vegum Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs, samtals eru þeir…Lesa meira

true

Singalong með Guðrúnu Árnýju söngkonu

Næstkomandi miðvikudag klukkan 20:00 mun Guðrún Árný söngkona koma fram á tónleikum til styrktar Krabbameinsfélagi Akraness og nágrennis. Tónleikarnir verða í Tónbergi á Akranesi og verða miðar seldir við innganginn frá klukkan 19:30. Miðaverð er 3.500 krónur. „Það er svo gaman að syngja og hvað þá í góðum hópi. Nú er tími að bjóða vini…Lesa meira

true

Svör framboða í Borgarbyggð um afstöðu til vindmyllugarða

Eins og mörgum er kunnugt hefur verið mikil andstaða í Þverárhlíð og einnig í Norðurárdal í Borgarfirði gegn hugsanlegum vindmyllu-framkvæmdum á Grjóthálsi og í landi Hvamms í Norðurárdal. Farið var af stað og safnað 90 undirskriftum, íbúa, landeigenda og náttúruunnenda, og í framhaldi af því áskorun send á öll framboðin sem bjóða fram til komandi…Lesa meira

true

Bæta aðstöðu í Súgandisey – Klofið við Stöngina

Stykkishólmsbær hlaut í síðustu viku 15,8 milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða. Styrkurinn fer til að fjármagna áframhaldandi uppbyggingu í Súgandisey í samræmi við vinningstillögu hönnunarsamkeppni um Fjöreggið. Um er að ræða uppsetningu á handriði og minniháttar jarðvegsframkvæmdir austanmegin á eyjunni sem gefa gestum eyjarinnar kost á því að skoða Stöngina, bergdrangana sem standa austan…Lesa meira

true

Fjórtán Íslandsmeistaratitlar á Garpamóti um helgina

Íslandsmeistaramót Garpa í sundi fór fram um helgina í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Á mótinu keppa 25 ára og eldri. Ríflega hundrað keppendur tóku þátt í mótinu, sem gerir það í röð fjölmennustu móta. Sundfélag Akraness átti sjö keppendur á mótinu og lönduðu þeir 14 Íslandsmeistaratitlum. Mótið var einnig stigamót milli félaga. Níu lið tóku þátt…Lesa meira

true

Fyrsta tap Skagaliðsins með skelli gegn Breiðabliki

Eftir að hafa fengið á sig tvö mörk á fyrstu sjö mínútum leiksins áttu Skagamenn því miður aldrei möguleika í leiknum gegn Breiðablik í dag í 1:5 tapi á Akranesvelli. Eftir nokkuð góða byrjun Skagamanna í Bestu deildinni í sumar urðu þeir loks að lúta í gras. Einn sigur og tvö jafntefli; alls fimm stig,…Lesa meira

true

Verkefnisstjórn mun undirbúa lagningu Sundabrautar

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær tillögu um að skipa verkefnisstjórn sem hafa mun umsjón með og fylgja eftir undirbúningi Sundabrautar. Nefndin verður skipuð fulltrúum innviðaráðuneytis, Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sérstakur verkefnisstjóri verður ráðinn til að starfa. „Sundabraut mun hafa í för með sér mikinn samfélagslegan ávinning og því er…Lesa meira