Styrkur til að bæta aðgengi að Drápuhlíðarfjalli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Við úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í liðinni viku var Sif Matthíasdóttir veittur styrkur að upphæð tæpar 4,4 milljónir króna til að vinna skipulag, hönnun og merkingar vegna ferðamennsku á og við Drápuhlíðarfjall í Helgafellssveit. Nánar tilgreint felur styrkurinn í sér öflun upplýsinga, skipulagsvinnu, stikun/merkingu gönguleiða og uppsetningu kynningarspjalda við fjallið. Deiliskipulagstillaga verður unnin fyrir afmarkað svæði á láglendi, sem mun verða skilgreint sem útivistarsvæði/ skógræktarsvæði. Verkefnið hefur öryggi ferðamanna og náttúruvernd að leiðarljósi, því auk uppsetningar á skiltum með kynningarefni og leiðbeiningar, verður svæðið stikað. Með þessu er stefnt að því að bæta öryggi ferðamanna, auk þess sem ónotaðir slóðar fá að gróa upp. „Verkefnið er prýðilegt innviðaverkefni enda snýr það að bættu öryggi, náttúruvernd á þessu sérstaka fjalli og er auk þess á áfangastaðaáætlun svæðisins,“ segir í niðurstöðu Framkvæmdasjóðs.\r\n\r\n<strong>Litríkt og sérkennilegt fjall</strong>\r\n\r\nÍ lýsingu á Drápuhlíðarfjalli segir að það er 527 metra hátt, sérkennilegt og litskrúðugt fjall sem inniheldur bæði basalt og lípít og marga einstaka steina. „Einnig er hægt að finna surtarbrand á milli blágrýtislaga og steingerða trjáboli. Talið var að gull væri í fjallinu en magnið sem fannst þótti heldur lítið. Fjallið er eitt það litríkasta og fallegasta á Íslandi. Grjóttaka er algjörlega bönnuð í dag.“",
  "innerBlocks": []
}
Styrkur til að bæta aðgengi að Drápuhlíðarfjalli - Skessuhorn