{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Við úthlutun styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í síðustu viku kom fram að Hvalfjarðarsveit hlýtur 3,5 milljónir króna. Styrkurinn mun fara til að bæta aðgengi og öryggi á gönguleiðinni að fossinum Glymi í botni Hvalfjarðar. Eins og kunnugt er slasa fjölmargir ferðamenn sig á hverju ári við göngu að fossinum og því talið brýnt að bæta aðstæður. Haldið verður áfram með að vinna að bættu öryggi á ferðamannastað samkvæmt tillögum sem Björgunarfélag Akraness hefur útfært og verður verkið unnið með náttúrulegum efnum af svæðinu. „Verkefnið felst í að bæta innviði, sem rímar vel við áherslur sjóðsins og er á áfangastaðaáætlun svæðisins,“ segir í umsögn FF.",
"innerBlocks": []
}