Úr einni af síðustu ferðum félagsins þegar gengið var um Straumfjörð á Mýrum undir leiðsögn Svans Steinarssonar. Ljósm. FFB.

Þrír styrkir til Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar ýmsar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila í landinu. Úthlutað hefur verið styrkjum úr sjóðnum fyrir árið 2022. Að þessu sinni var úthlutað 548 milljónum króna. Þrír af þeim styrkjum sem úthlutað er að þessu sinni fara til verkefna á vegum Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs, samtals eru þeir að upphæð um 9,2 milljónir króna.\r\n\r\n<strong>Hafnarfjall</strong>\r\n\r\nFerðafélag Borgarfjarðarhéraðs fær styrk upp á rúmar fjórar milljónir króna til að hanna, smíða og setja upp útsýnisskífu á toppi Hafnarfjalls. Þá er ætlunin að gera áningarstað við Vatnsveitustífluna, sem er við leiðina á fjallið. Einnig verða settir vegvísar á þremur stöðum, sem vísa tvær leiðir upp á leiðinni til Hafnarfjalls, sem er sá fyrsti á svokallaðri „Sjö tinda leið“. Ætlunin er síðan að merkja hvern tind með nafni hans og vegalengd á næsta tind. Þá er ætlunin að stika sjö tinda leiðina.\r\n\r\n<strong>England</strong>\r\n\r\nFFB hlaut einnig styrk upp á 2,8 milljónir fyrir hönnun og undirbúning gönguleiðar og útivistarsvæðis á Englandi í Lundarreykjadal. Verkefnið felst í að hanna göngubrú yfir Tunguá, við Englandslaug, hanna stíga að lauginni og við hana, hanna salernis- og búningsaðstöðu sem fellur að umhverfinu ásamt þeirri skiplagsvinnu sem nauðsynleg er. Einnig er ætlunin að tengja Englandslaug og Pétursverki saman með gönguleið og í framhaldinu að merkja hringleið sem tengir þessi mannvirki við Hótel Basalt á Iðunnarstöðum og Krosslaug á merkjum Brennu og Reykja. Þetta er ný þrettán kílómetra löng gönguleið sem nú þegar hefur vakið athygli. Einnig verður styrkurinn nýttur til að undirbúa endurbætur á Pétursvirki. Þess má geta að sótt var um styrk í Fornminjasjóð til að lagfæra Pétursvirki og bjarga því frá eyðileggingu en þeirri umsókn var hafnað. Englandsverkefnið verður unnið í samráði við landeigendur á Englandi og nærliggjandi bæjum, Ungmennafélagið Dagrenningu í Lundarreykjadal og fleiri aðila.\r\n\r\n<strong>Vatnaleið</strong>\r\n\r\nLoks var þriðja verkefni FFB sem hlaut styrk úr sjóðnum uppbygging Vatnaleiðar, um 2,3 milljónir króna. Verkefnið felst í að halda áfram með uppbyggingu Vatnaleiðar og auka ennfrekar á öryggi göngufólks og um leið að auka ánægju af gönguferðum á svæðinu sem og að vernda umhverfið. Verkefnið felst í að stika og merkja alla leiðina, setja upp upplýsingaskilti sem verða við Hítarvatn og Langavatn og setja handrið á stíflu sem er í árósi við Hítarvatn.\r\n\r\n„Stjórn Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs þakkar, fyrir hönd félagsins, fyrir myndarlegar styrkveitingar og um leið viðurkenningu á umræddum verkefnum. „Það er óhætt að segja að þessar styrkveitingar séu framar okkar björtustu vonum, þó vonir okkar séu almennt bjartar,“ segir Gísli Einarsson, forseti félagsins í samtali við Skessuhorn. „Við erum sjálf sannfærð um að þessi verkefni séu öll verðug og verði útivistarfólki í héraði, og utan héraðs, til framdráttar. Við gerum okkur líka grein fyrir að það er verk að vinna en miðað við hverstu ótrúlega góðar viðtökur félagið hefur fengið á sínu fyrsta starfsári þá erum við viss um að okkur mun vinnast vel á næstu misserum,“ segir Gísli.",
  "innerBlocks": []
}
Þrír styrkir til Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs - Skessuhorn