
Í ljósi umfjöllunar um Breiðafjarðarferjuna Baldur í þætti Kveiks í Ríkissjónvarpinu senda sveitarfélögin á sunnanverðum Vestfjörðum, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Í þættinum var ömurlegt ástand skipsins sýnt, bæði hvað varðar öryggismál sem og almennan aðbúnað. Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur hafa ítrekað bent á þá staðreynd fyrir daufum eyrum að Breiðafjarðarferjan Baldur uppfylli ekki…Lesa meira








