Fréttir

true

Banaslys á Bröttubrekku

Karlmaður, sem var einn á ferð á vélsleða um kvöldmatarleytið í gær, lést eftir að hafa lent í slysi nærri Bröttubrekku. Björgunarsveitir fengu útkallsbeiðni klukkan 19:08 eftir að vélsleðamenn sem áttu leið um svæðið fundu manninn og gerðu viðvart. Tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur. Frá þessu er greint á upplýsingasíðu lögreglunnar og bætt við…Lesa meira

true

Árni Friðriksson kom inn til löndunar

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson HF 200 kom til hafnar í Grundarfirði miðvikudaginn 22. mars síðastliðinn. Marsrallið var þá í fullum gangi og þurfti skipið að koma til löndunar þar sem mikið af karfa hafði komið í veiðarfærin, en alla jafna þarf ekki mikinn afla til að fylla geymslur skipsins. Skipið hafði verið að toga vestan- og…Lesa meira

true

Rauða fjöðrin seld til styrktar kaupum á leiðsöguhundum fyrir blinda

Lionshreyfingin á Íslandi safnar fé á nokkurra ára fresti til góðra málefna undir merkinu „Rauða fjöðrin“. Nú hafa Lionshreyfingin og Blindrafélagið tekið höndum saman um átak til að tryggja framboð af leiðsöguhundum í landinu til nýrra notenda og til endurnýjunar þeirra hunda sem nú þegar eru til staðar. Samstarf Lions og Blindrafélagsins byggir á gömlum…Lesa meira

true

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram föstudaginn 8. apríl í húsnæði Samfylkingarinnar við Stillholt 16-18 frá kl. 12:30-16:30. Hægt er að sækja um í síma 859-3000 og í síma 859-3200 dagana 31. mars, 1. apríl og mánudaginn 4. apríl, frá kl 11-13. Einnig má sækja um á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com. Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn…Lesa meira

true

Flóttafólk væntanlegt á Bifröst í næstu viku

Eins og greint var frá í Skessuhorni í síðustu viku ætlar Háskólinn á Bifröst að leggja til húsnæði til móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Móttaka fólksins er unnin í samstarfi skólans, Borgarbyggðar, ríkisins og Rauða kross Íslands og er nú unnið hörðum höndum að undirbúningi fyrir komu flóttafólksins. „Við gerum ráð fyrir að fyrstu gestir komi…Lesa meira

true

Magnús og Saxhamar taka þátt í netaralli Hafró

Netarall Hafrannsóknarstofnunar hófst í gær og taka sex bátar þátt í verkefninu; Magnús SH í Breiðafirði, Saxhamar SH í Faxaflóa, Þórsnes SH frá Reykjanesi að Þrídröngum, Friðrik Sigurðsson ÁR frá frá Þrídröngum að Skeiðarárdjúpi, Sigurður Ólafsson SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum og Hafborg EA fyrir Norðurlandi. Netarallið fer þannið fram að um 45-60 trossur eru…Lesa meira

true

Í dag hefur fólk bankann í vasanum

Nú um mánaðamótin lætur Steinunn Ásta Guðmundsdóttir af störfum hjá Arion banka í Borgarnesi. Tæp 45 ár eru liðin frá því hún hóf störf við Sparisjóð Mýrasýslu í Borgarnesi sem síðar rann inn í bankann sem heitir nú Arion banki. Við ráðningu haustið 1977 var hún 13. starfsmaður bankans. Eftir það óx sjóðurinn að umfangi…Lesa meira

true

Bingó í Heiðarskóla til styrktar hjálparstarfi í Úkraínu

Umhverfisnefnd Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit hefur árlega reynt að láta gott af sér leiða með einhverjum hætti og gjarnan tekið þátt í verkefninu Jól í skókassa. Nefndin ákvað að gera það ekki á þessu skólaári og finna umhverfisvænni leið til að gera góðverk. Var því ákveðið að safna fjármunum og styrkja gott málefni. Ætlar nefndin að…Lesa meira

true

Hvað eru skinnhandrit og af hverju þarf að læsa þau niður?

Dagana 6. til 9. apríl fær miðstig nokkurra grunnskóla á Vesturlandi óvenjulega heimsókn. Þar er á ferðinni kynning á sjálfum handritunum undir heitinu Bál tímans – kveikjum ljós um miðaldahandritin! Bók Arndísar Þórarinsdóttur er þungamiðja kynningarinnar sem höfundurinn annast ásamt Evu Maríu Jónsdóttur miðaldafræðingi. Það er List fyrir alla sem sendir þessa fulltrúa Árnastofnunar sem…Lesa meira

true

Kanna hagkvæmni varmadæla þar sem hitaveita er ekki í boði

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í síðustu viku var samþykkt með fimm atkvæðum tillaga þess efnis að gerður verði verksamningur við Hagvarma ehf. um að meta hagkvæmni þess að setja upp varmadælukerfi til hitunar á rafkyntu húsnæði í Hvalfjarðarsveit. Verkið felur í sér að kanna aðstæður í þeim íbúðarhúsum og/eða lögheimilum þar sem vilji er til…Lesa meira