Fréttir

true

Asahláka og flóð í borgfirsku ánum

Í gær rigndi mikið um vestanvert landið samhliða hlýjum vindum. Snjóbráð var samkvæmt því mikil. Árnar í Borgarfirði höfðu engan vegin við vatnsflaumnum og margar sem brutust fram með klakahlaupi og látum. Meðal annars var óvenjulega mikið flóð í Andakílsá og þá hafði hefðbundinn farvegur Hvítár ekki undan að færa til sjávar allt vatnið af…Lesa meira

true

Sameining Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar samþykkt í afgerandi kosningu

Í dag gengu íbúar í Stykkishólmsbæ og Helgafellssveit á Snæfellsnesi til kosninga og samþykktu sameiningu sveitarfélaganna. Niðurstaðan varð afgerandi í báðum sveitarfélögum. Í Helgafellssveit voru 56 á kjörskrá og kusu 52. Já sögðu 41, nei sögðu níu og auðir seðlar og ógildir voru tveir. Kjörsókn var því 93%. Í Stykkishólmsbæ voru 837 á kjörskrá og…Lesa meira

true

ÍA með fimmtán ósigra í röð eftir tap gegn Fjölni

Fjölnir og ÍA léku í gær lokaleik sinn þennan veturinn í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Dalhúsum í Grafarvogi. Heimamenn voru ívið sterkari í fyrsta leikhluta og voru með sjö stiga forystu þegar flautan gall, 31:24. Fjölnir hélt áfram að auka við forskotið í öðrum leikhluta og var munurinn kominn…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Sindra

Skallagrímur og Sindri mættust í síðustu umferðinni í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Höfn í Hornafirði. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta mestan hlutann en heimamenn skoruðu síðustu sjö stigin og staðan 27:20 fyrir Sindra. Í öðrum leikhluta náðu Skallagrímsmenn að skora átta stig í röð…Lesa meira

true

Netaveiðinni lokið á Ólafi Bjarnasyni

Áhöfnin á netabátnum Ólafi Bjarnasyni SH hefur nú lokið netaveiðum í vetur. Að sögn Orra Magnússonar skipstjóra, sem var að ljúka sinni fyrstu netavertíð sem skipstjóri, verður farið á dragnót eftir helgi. „Þessi netavertíð var góð hjá okkur þótt við höfum ekki beitt okkur af fullum afköstum í vetur, en við fengum 640 tonn í…Lesa meira

true

Framsóknarflokkurinn í Borgarbyggð kynnir framboðslista sinn

Framsóknarfélagið í Borgarbyggð staðfesti í kvöld lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí. Óbreytt röðun er á efstu tveimur sætum listans frá líðandi kjörtímabili. Guðveig Eyglóardóttir er oddviti listans sem fyrr og Davíð Sigurðsson í öðru sæti. Framsóknarflokkurinn á nú fjóra fulltrúa í sveitarstjórn. Listinn er þannig í heild sinni: Nr. 1. Guðveig Eyglóardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Nr.…Lesa meira

true

Tveir Skagamenn á leið á Heimsmeistaramót U21 í keilu

Tveir úr Keilufélagi Akraness voru valdir til að spila fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramóti U21 í keilu sem haldið verður í Svíþjóð dagana 19.-30. júní í sumar. Það eru þeir Ísak Birkir Sævarsson og Jóhann Ársæll Atlason en auk þeirra er lið drengja skipað Hinriki Óla Gunnarssyni úr Keiludeild ÍR og Mikael Aroni Vilhelmssyni frá…Lesa meira

true

Innköllun á graflaxi frá Eðalfiski

Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á Úrvals graflaxi frá Eðalfiski ehf. vegna listeríu sem fannst í vörum með síðasta notkunardegi á tímabilinu 13.3.2022-11.4.2022.  Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar í varúðarskyni af markaði og sent út fréttatilkynningu. Innköllunin á við eftirfarandi framleiðslulotur: Vöruheiti: Úrvals grafnar sneiðar, Úrvals grafinn lax (bitar), Úrvals grafinn lax (flök) Framleiðandi: Eðalfiskur ehf,…Lesa meira

true

Fyrsti heimaleikur Víkings Ó á morgun

Knattspyrnulið Víkings Ólafsvíkur leikur sinn fyrsta heimaleik á Ólafsvíkurvelli í Lengjubikarnum á morgun, laugardag, en til þessa hefur liðið leikið heimaleiki sína í Akraneshöllinni. Víkingur hefur leikið fjóra leiki í í riðli 1 í B deild karla í Lengjubikarnum í ár og er í fjórða sæti með fjögur stig. Þeir sigruðu nágranna sína úr Kára…Lesa meira

true

Sjávarútvegsráðherra ætlar að bæta strandveiðimönnum upp skerðinguna

Sjávarútvegsráðherra hyggst auka þorskkvóta strandveiðibáta um 1500 tonn. Þessi veiðiheimild fékkst í skiptum fyrir 5,3% af deilistofnum sem Íslendingar hafa rétt til að veiða. Fyrr í vetur hafði Svandís Svavarsdóttir ákveðið að skerða strandveiðar um sömu 1500 tonn. Svandís skrifar sjálf á vef Strandveiðifélags Íslands í gær: „Ég á enn eftir að taka ákvörðun um…Lesa meira