Jaroslav hífður á land í Ólafsvíkurhöfn.

Sjávarútvegsráðherra ætlar að bæta strandveiðimönnum upp skerðinguna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sjávarútvegsráðherra hyggst auka þorskkvóta strandveiðibáta um 1500 tonn. Þessi veiðiheimild fékkst í skiptum fyrir 5,3% af deilistofnum sem Íslendingar hafa rétt til að veiða. Fyrr í vetur hafði Svandís Svavarsdóttir ákveðið að skerða strandveiðar um sömu 1500 tonn. Svandís skrifar sjálf á vef Strandveiðifélags Íslands í gær: „Ég á enn eftir að taka ákvörðun um hvernig þetta verður útfært, en ljóst er að það er svigrúm til að bæta inn í strandveiðipottinn líkt og ég hafði vonast til að geta gert. Strandveiðar skipta miklu máli fyrir byggðir landsins og það stendur mér nærri að standa vörð um það kerfi samhliða því að hvika hvergi frá því grundvallarsjónarmiði að fylgja vísindalegri ráðgjöf.“\r\n\r\nTrillukarlar sem hyggjast fara á strandveiðar í vor eru nú byrjaðir að undirbúa báta sína fyrir komandi vertíð, en þeir mega byrja veiðar 2. maí. Strandveiðibáturinn Jaroslav er einn þeirra báta sem fer á strandveiðar í sumar og var eigandinn að taka bátinn í land til þess að skvera hann af fyrir sumarið undir lok vikunnar.",
  "innerBlocks": []
}
Sjávarútvegsráðherra ætlar að bæta strandveiðimönnum upp skerðinguna - Skessuhorn