Fréttir

true

Nýir skipulags- og umhverfisfulltrúar í Hvalfjarðarsveit

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi þriðjudaginn 22. mars að ráða Jökul Helgason í 60% stöðu skipulagsfulltrúa hjá sveitarfélaginu og Arnheiði Hjörleifsdóttur í 50% stöðu umhverfisfulltrúa. Taka þau við störfunum af Boga Kristinssyni fyrrum skipulags- og umhverfisfulltrúa sem sagði upp störfum í lok síðasta árs.Lesa meira

true

Vilhjálmur kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, var í morgun kjörinn formaður Starfsgreinasambands Íslands og tekur við af Birni Snæbjörnssyni. Vilhjálmur hlaut 70 atkvæði af 130, eða tæp 54%. Þórarinn G Sverrisson, formaður Öldunnar stéttarfélags, gaf einnig kost á sér og fékk 60 atkvæði eða rúm 46%.Lesa meira

true

Hótel Akranesi verður breytt í fjögurra hæða fjölbýlishús

Á fundi bæjarstjórnar Akraness síðastliðinn þriðjudag var tekin fyrir umsókn um breytingu á skipulagi Breiðarsvæðis vegna Bárugötu 15, en fyrirhugað er að breyta núverandi húsi á lóðinni í fjölbýlishús með allt að átta íbúðum. Húsið sem um ræðir er gamla Hótel Akraness sem flestir Skagamenn þekkja og eiga margar góðar minningar frá þeim sögufræga stað.…Lesa meira

true

Borgarbyggð undirbýr komu flóttafólks frá Úkraínu

Borgarbyggð er nú í óða önn að undirbúa komu flóttafólks frá Úkraínu. Móttakan er unnin í samstarfi Borgarbyggðar, Rauða kross Íslands, Háskólans á Bifröst og fleiri aðila. Ríkið hefur þegar gert samning við Háskólann á Bifröst sem mun leggja til herbergi og íbúðir í verkefnið. Borgarbyggð mun halda utan um móttökuna í samstarfi við RKÍ…Lesa meira

true

Kosið um sameiningu tveggja sveitarfélaga á morgun

Á morgun, laugardaginn 26. mars, ganga íbúar í Helgafellssveit og Stykkishólmi til kosninga um sameiningu sveitarfélaganna. Kjörfundir í báðum sveitarfélögum munu standa yfir frá klukkan 10-18; í Grunnskólanum Stykkishólmi og Félagsheimilinu Skildi. Samstarfsnefnd hvetur íbúa til að kynna sér tillögu nefndarinnar vel og nýta kosningaréttinn.Lesa meira

true

Laun hækka vegna hagvaxtarauka

Forsendunefnd Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, sem starfar samkvæmt kjarasamningum, hefur hist og rætt hagvaxtarauka kjarasamninga. Landsframleiðsla jókst á mann um 2,53% á síðasta ári. Þetta hefur þá þýðingu að hagvaxtarauki kjarasamninga hefur virkjast í fjórða þrepi. Forsendunefndin hefur ákveðið að hagvaxtaraukinn komi til greiðslu 1. maí líkt og kveðið er á um í samningum…Lesa meira

true

Tæpum þremur milljörðum ráðstafað til ferðamannastaða

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, gerði fyrr í vikunni grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir um 2,8 milljarða króna framlagi til næstu þriggja ára. Í ár verður úthlutað rúmlega 914 milljónum króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða sem gerir kleift að halda áfram því…Lesa meira

true

Fermingarbörn söfnuðu á sjöunda hundrað þúsund fyrir vatnsbrunni

Föstudaginn 11. mars hófst sólarhrings dansmaraþon fermingarbarna í Borgarbyggð og fór það fram í Reykholtskirkju. Með dansmaraþoninu vildu krakkarnir safna fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu en vatnssöfnun fermingarbarna er eitt stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Söfnuðu krakkarnir áheitum hjá vinum og vandamönnum og söfnuðu alls 612.600 krónum.Lesa meira

true

Fermingar að byrja

Fyrstu fermingar ársins á Vesturlandi verða um helgina en á sunnudaginn á að ferma tvo hópa í Akraneskirkju, þann fyrri kl. 10:30 og seinni kl. 13:30. Þetta eru fyrstu fermingarnar síðan 2019 sem fara fram án samkomutakmarkana og munu fermingarbörnin vonandi njóta dagsins.Lesa meira

true

Tveir Skagamenn á leið á Heimsmeistaramót U21 í keilu

Tveir úr Keilufélagi Akraness voru valdir til að spila fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramóti U21 í keilu sem haldið verður í Svíþjóð dagana 19.-30. júní í sumar. Það eru þeir Ísak Birkir Sævarsson og Jóhann Ársæll Atlason en auk þeirra er lið drengja skipað Hinriki Óla Gunnarssyni úr Keiludeild ÍR og Mikael Aroni Vilhelmssyni frá…Lesa meira