Bárugata 15 eins og hún lítur út í dag. Eigandi hússins er Ragnar Guðmundsson hjá Múrverki RG. Hann hefur undanfarin ár gert miklar lagfæringar á húsinu og undirbúið það verk að byggja tvær hæðir ofan á það. Framkvæmdir munu hefjast á næstunni og stefnir Ragnar á að þeim verði lokið eftir eitt ár. Ljósm. vaks

Hótel Akranesi verður breytt í fjögurra hæða fjölbýlishús

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi bæjarstjórnar Akraness síðastliðinn þriðjudag var tekin fyrir umsókn um breytingu á skipulagi Breiðarsvæðis vegna Bárugötu 15, en fyrirhugað er að breyta núverandi húsi á lóðinni í fjölbýlishús með allt að átta íbúðum. Húsið sem um ræðir er gamla Hótel Akraness sem flestir Skagamenn þekkja og eiga margar góðar minningar frá þeim sögufræga stað. Í þó nokkurn tíma hefur verið í umræðunni að byggja ofan á núverandi hús og hafa bæjaryfirvöld nú gefið grænt ljós á að Bárugötu 15 verði breytt. Skipulags- og umhverfisráð lagði til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi skipulagslýsing yrði auglýst með hefðbundnum hætti. Bæjarstjórn samþykkti auglýsingu skipulagslýsingar.\r\n\r\n„Markmið breytingarinnar er að heimila uppbyggingu á fjölbýlishúsi, stuðla að fjölgun íbúa í þessum hluta bæjarins. Mikil breyting hefur orðið á hvað varðar atvinnuumhverfi á svæðinu til dæmis með breyttri nýtingu á þeim mannvirkjum sem áður hýstu fiskverkun og útgerð HB &Co og síðar Brims. Uppi eru áætlanir um enn frekari breytingar á nálægum svæðum til dæmis á Breiðinni. Fjölgun íbúða á svæðinu er skref í styrkingu svæðisins þegar horft er til fjölgun íbúa og tækifæri á búsetu á neðri Skaga,“ segir í fylgiskjali með afgreiðslu nefndarinnar.\r\n\r\nÞá segir að Bárugata sé ein neðsta íbúðarhúsagatan á Akranesi og þar mætast íbúðabyggð, verslun og þjónusta og atvinnusvæði. Á neðri Skaga hafa mörg íbúðarhús verði ýmist flutt annað, stundum innan svæðis, eða verði rifin og hafa mörg hús við Bárugötu horfið í gegnum tíðina og íbúum þá um leið fækkað á svæðinu. „Samsetning atvinnutækifæra á Akranesi hefur breyst mikið og hefur útgerð og fiskverkun dregist saman en að sama skapi hafa aðrar atvinnugreinar fyllt í skarðið og hefur fjölbreytni atvinnutækifæra aukist mikið ekki síst með Breiðinni þróunarsetri. Uppbygging á íbúðarhúsnæði á þessu svæði á Akranesi stuðlar að jafnvægi byggðarinnar í nálægð við fjölmörg fyrirtæki á neðri hluta Akraness.“\r\n\r\nEinnig segir að í húsakönnun sé Bárugata 15 skilgreind á byggingartímabili 1925-1949 og í fasteignaskrá er byggingarár tilgreint 1945, húsið falli því ekki undir 29. gr. laga um menningarminjar 80/2012 um friðuð mannvirki þar sem öll hús og mannvirki sem eru 100 ára eða eldri séu friðuð. Bárugata 15 er skilgreint með varðveislugildi tvö sem einstakt hús, húsaraðir og götumyndir. Áætlun er um að byggja ofan á núverandi hús, húsið verði ekki rifið og verður því áfram hluti götumyndar Bárugötu en með eitthvað breyttu útliti.",
  "innerBlocks": []
}
Hótel Akranesi verður breytt í fjögurra hæða fjölbýlishús - Skessuhorn