Skallagrímur hefur lokið leik á þessu tímabili og endaði í sjöunda sæti deildarinnar með 22 stig. Ljósm. vaks

Skallagrímur tapaði fyrir Sindra

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímur og Sindri mættust í síðustu umferðinni í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Höfn í Hornafirði. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta mestan hlutann en heimamenn skoruðu síðustu sjö stigin og staðan 27:20 fyrir Sindra. Í öðrum leikhluta náðu Skallagrímsmenn að skora átta stig í röð og minnka muninn í eitt stig á fyrstu mínútunni. Síðan tóku heimamenn aftur við sér og náðu þrettán stiga forystu eftir tæplega fimm mínútna leik, 46:33. Hægt og rólega náðu Skallarnir að koma sér inn í leikinn og  minnka muninn, staðan í hálfleik, 58:54 fyrir Sindra.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta voru heimamenn með yfirhöndina, náðu mest 16 stiga forystu og leiddu með átta stigum fyrir síðasta fjórðunginn, 84:72. Þar náðu gestirnir lítið að ógna og heimamenn sigldu þessu örugglega í höfn á Höfn, lokatölur 106:93.\r\n\r\nStigahæstir hjá Skallagrími voru þeir Bryan Battle með 16 stig, Davíð Guðmundsson með 15 stig og Marinó Þór Pálmason með 14 stig. Hjá Sindra voru þeir Detrek Browning og Jordan Connors með 22 stig hvor og Patrick Simon með 19 stig.",
  "innerBlocks": []
}
Skallagrímur tapaði fyrir Sindra - Skessuhorn