Fréttir

true

Kútmagakvöld Lions fór vel fram

Lionsklúbbur Grundarfjarðar stóð fyrir sínu hefðbundna kútmagakvöldi síðasta laugardag. Vel var mætt enda kræsingarnar ómótstæðilegar. Þar mátti gæða sér á dásamlegri fiskisúpu, allskonar fiskréttum og að sjálfsögðu kútmögum sem voru hanteraðir eftir kúnstarinnar reglum. Sérlegir gestir kvöldsins voru Lionsklúbbur Kópavogs og var kátt á hjalla. Allt fiskmeti var frá G.Run og Soffaníasi Cecilssyni. Sjá fleiri…Lesa meira

true

Íbúafundir í Stykkishólmi og Helgafellssveit voru vel sóttir

Íbúafundir voru haldnir í sveitarfélögunum tveimur á mánudaginn og var mæting góð á báða fundi. Vegna veðurs tafðist um hálftíma að hefja fund Stykkishólmi en þrátt fyrir það komu fjölmargir gestir til fundarins í Stykkishólmskirkju auk þess sem hægt var að fylgjast með honum í beinni útsendingu frá kirkjunni. Að loknum stuttum ávörpum frá Hrafnhildi…Lesa meira

true

Júlíana framundan í Stykkishólmi

Júlíana, hátíð sögu og bóka, verður haldin dagana 24.-26. mars í Stykkishólmi og verður þetta viðamesta hátíðin frá upphafi. Að hátíðinni standa að þessu sinni þær Ásdís Árnadóttir, Gréta Sigurðardóttir, Nanna Guðmundsdóttir og Sunna Guðný Högnadóttir. „Það verður rosalega skemmtileg dagskrá hjá okkur í ár, eins og alltaf,“ segir Gréta ánægð í samtali við Skessuhorn.…Lesa meira

true

Snæfell spilar í kvöld í undanúrslitum gegn Breiðablik í VÍS bikarnum

Mikil stemning hefur verið að myndast undanfarna daga í Stykkishólmi fyrir leik Snæfells og Breiðabliks í undanúrslitum VÍS bikars kvenna í körfuknattleik. Leikurinn fer fram í kvöld í Smáranum í Kópavogi og hefst klukkan 17.15. Snæfell er eina liðið úr 1. deild sem komst alla leið í undanúrslit bikarkeppninnar í ár en Haukar og Njarðvík…Lesa meira

true

Líf og fjör á opnu húsi um Alls-kyns í MB

Líf og fjör ásamt uppbyggilegri fræðslu einkenndi liðna viku í Menntaskóla Borgarfjarðar. Allir nemendur skólans eru í áfanganum Alls-kyns sem er helgaður umfjöllun um kynlíf, kynhneigð og kynheilbrigði með áherslu á mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum fólks. Er þetta fyrsti áfanginn af fimm í Lífsnámi MB. Nemendur unnu í hópum að ákveðnum verkefnum sem tengdust…Lesa meira

true

Upplestrarkeppni grunnskólanna fór fram í Tónbergi

Í gærkvöldi var haldin lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi og fór hún fram í Tónbergi fyrir nánast fullu húsi. Þar var boðið upp á upplestur tólf nemenda úr 7. bekkjum Brekkubæjarskóla og Grundaskóla. Að auki flutti rithöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir ávarp, flutt voru tónlistaratriði nemenda úr Tónlistarskóla Akraness og Viktoria Emilia Orlita, nemandi úr 7.…Lesa meira

true

Gamli Heiðarskóli fær nýtt hlutverk

Hús gamla Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit hefur undanfarnar vikur tekið miklum breytingum þar sem búið er að breyta stórum hluta hússins í íbúðir og einstaklingsherbergi. Húsið er í eigu fyrirtækisins Fasteflis ehf. sem er í eigu Skagamannsins Óla Vals Steindórssonar. „Ég elska að breyta gömlu í nothæft,“ segir Óli Valur þegar blaðamaður Skessuhorns kíkti á hann…Lesa meira

true

Framboðsfrestur er til hádegis 8. apríl

Frestur til að skila framboðslistum til sveitarstjórnakosninga til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi rennur út klukkan 12 á hádegi föstudaginn 8. apríl. Í tilkynningu frá Landskjörstjórn kemur einnig fram að þeir sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skuli tilkynna þá ákvörðun innan sama frests. Utankjörstaða atkvæðagreiðsla skal hefjast svo fljótt sem kostur er eftir að framboðslistar…Lesa meira

true

Kynntu skólann fyrir nemendum í 10. bekk

Menntaskóli Borgarfjarðar bauð í gær öllum nemendum í tíunda bekk Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskóla Borgarness og Auðarskóla í Dölum í heimsókn. Hefðbundin kennsla var felld niður fyrir hádegi og nemendur menntaskólans tóku að sér hlutverk gestgjafa og leiddu gestina um skólann og sögðu frá starfinu. Í skólanum höfðu kennarar sett upp ýmsar stöðvar til að kynna…Lesa meira

true

Flotgólf bauð lægst í uppsteypu íþróttahúss á Jaðarsbökkum

Á fundi Skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar á mánudaginn voru opnuð tilboð í verkið „Íþróttahús – Uppsteypa og ytri frágangur“ að Jaðarsbökkum. Tvö tilboð bárust í verkið og voru þau annars vegar frá Alefli ehf og hljóðaði upp á 1.451 milljón króna og hins vegar frá Flotgólfi upp á 1.212 milljónir króna. Kostnaðaráætlun var 1.088 milljónir…Lesa meira