Fréttir

true

Nauðsynlegt að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri ferju

Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólms síðastliðinn fimmtudag var tekið fyrir málefni Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafði óskað eftir umsögn Stykkishólmsbæjar um tillögu til þingsályktunar um kaup á nýrri Breiðafjarðarferju. Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar segist taka undir þingsályktunina en vill leggja áherslu á umhverfisvæna kosti bæði sem bráðabirgðalausn og til lengri tíma. „Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar vekur athygli á…Lesa meira

true

Skallagrímur náði sigri gegn Hamri

Skallagrímur og Hamar mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Hveragerði. Skallagrímur byrjaði mun betur í leiknum og komst í 5:17 eftir rúmlega fimm mínútna leik. Skallagrímur hélt forskotinu út fyrsta leikhlutann og staðan 20:32. Í byrjun annars leikhluta náðu heimamenn að minnka muninn í fimm stig og…Lesa meira

true

Víkingur kom í nótt með loðnu

Um klukkan 4:30 í nótt kom Víkingur AK inn til löndunar á Akranesi með loðnufarm úr Breiðafirði. Hryssingslegt veður var þegar skipið kom inn, hvasst og slagveðursrigning. Skipið þurfti að fara í stutta löndunarbið þar sem enn var verið að landa úr Svani RE. Því lauk á sjöunda tímanum í morgun og sigldi Svanur þá…Lesa meira

true

Tóku þátt í Norðurlandamótinu í klifri

Um liðna helgi fór fram Norðurlandamót ungmenna í klifri. Mótið var haldið í Bison Boulders í Kaupmannahöfn og tók stór hópur klifrara frá Íslandi þátt, þar af sjö klifrarar frá Klifurfélagi ÍA. Flest þeirra voru að klifra á erlendum vettvangi í fyrsta skipti og því var mikil spenna í hópnum. Undankeppnin fór fram laugardagsmorguninn 26.…Lesa meira

true

Bálhvasst þar sem vindur stendur af fjöllum

Nú er slæmt ferðaveður á vegum þar sem vindur stendur af fjöllum. Áttin er suðaustlæg. Laust fyrir klukkan tíu í morgun fór vindur í hviðum upp í 56 metra á sekúndu við Hafnarfjall og nú slær hann upp í 44 metra/sek. Við slíkar aðstæður er varhugavert að vera á ferðinni. Björgunarfélag Akraness hefur verið kallað…Lesa meira

true

Minningarathöfn um áhöfn Krossness SH-308

Miðvikudaginn 23. febrúar síðastliðinn voru þrjátíu ár liðin frá því að togarinn Krossnes SH-308 fórst á Halamiðum og með honum þrír menn. Togarinn var gerður út frá Grundarfirði og var slysið eðli málsins samkvæmt þungt högg fyrir samfélagið. Á þessum tímamótum í síðustu viku hittust eftirlifandi áhafnarmeðlimir og aðstandendur við minnismerki þeirra sem fórust, en…Lesa meira

true

Sólardagar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Nemendur og kennarar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði brutu upp skólastarfið með svokölluðum sólardögum í síðustu viku. Þá var dagskráin frekar óhefðbundin og bryddað upp á ýmsum nýjungum sem varla teljast til hefðbundins námsefnis. Til dæmis var keppt í hinum ýmsu greinum eins og boccia, pílukasti, skák, félagsvist og ýmsum spilum. Krökkunum gafst tækifæri á…Lesa meira

true

Asahláka á öskudegi

Það gefur ekkert sérlega vel fyrir börn í söng- og nammiferðir í dag. Gul viðvörun er í gildi fyrir Faxaflóasvæðið fram til klukkan þrjú í dag; spáð suðaustan 15-23 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Einnig verður rigning og talsverð snjóbráð og er fólk hvatt til að huga að niðurföllum. Í dag þarf því allt…Lesa meira

true

Torgið hárstofa verður opnuð á morgun

Torgið hárstofa verður opnuð við Akratorg á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 3. mars. Það eru þær Ólöf Una Ólafsdóttir og Ína Dóra Ástríðardóttir sem opna stofuna. Þær voru á fullu að undirbúa opnun þegar blaðamaður Skessuhorns leit inn til þeirra síðastliðinn mánudag. Ólöf og Ína Dóra eru Skagamönnum vel kunnar en þær hafa báðar starfað…Lesa meira

true

Vinnusmiðja um móttöku skemmtiferðaskipa á Akranesi

Áfanga- og markaðssvið (Á&M) Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Akraneskaupstaður og Faxaflóahafnir taka nú þátt í samstarfsverkefni um gæði móttöku skemmtiferðaskipa á Akranesi. Verkefnið heitir Nora og kemur í gegnum Ferðamálastofu og er samstarfsverkefni við The Association of Arctic Expedition Cruise Operators (AECO). Markmið verkefnisins er að heimamenn í hverri höfn leggi línur um hvernig þeir…Lesa meira