Fréttir

true

Strætó út af í gærkvöldi og ferð felld niður í morgun

Strætó á leið 57, Reykjavík – Akranes, fór út af í gærkvöldi á Kjalarnesi, milli Mógilsárs og Grundarhverfis. Veður var mjög slæmt þegar óhappið varð. Engan sakaði. Mjög hvasst var á svæðinu í alla nótt og er vegurinn um Kjalarnes nú lokaður fyrir umferð. Fyrsta strætóferð dagsins var því felld niður í morgun. Á vef…Lesa meira

true

Gera ríflega eina bollu á hvern íbúa

Það var líf og fjör í Kallabakaríi á Akranesi á áttunda tímanum í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við við upphaf bolludags. Framleiðsla á allskyns bollum var í fullum gangi í bakaríinu og þegar komin biðröð af viðskiptavinum frammi í búð. Allt gekk þetta þó ljúft fyrir sig. Fyrstu bakarar mættu til vinnu klukkan…Lesa meira

true

Vegir lokaðir og ekkert ferðaveður fyrir hádegi

Enn ein lægðin gengur nú yfir vestanvert landið og er gul viðvörun nú í gildi við Faxaflóa og appelsínugul viðvörun við Breiðafjörð. Norðaustan 20-28 m/s og snarpar vindhviður eru við Breiðafjörð fram að hádegi í dag, hvassast norðantil á svæðinu. Þá má búast við snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni. Viðvörunarstigið færist niður í gula…Lesa meira

true

Var dregin út í eldvarnagetraun

Verðlaun voru veitt í síðustu viku í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutingsmanna. Sigurður Þór Elísson eldvarnaeftirlitsmaður hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðar fór þá í Grundaskóla og afhenti Laufeyju Svanbergsdóttur nemanda í 3. bekk verðlaun. Nafn hennar hafði verið dregið út og fékk Laufey að launum viðurkenningarskjal og gjafakort í Spilavinum.Lesa meira

true

Góufagnaður eldri borgara í Hvalfjarðarsveit

Miðvikudaginn 2. mars verður Góufagnaður eldri borgara haldinn í Miðgarði og hefst skemmtunin klukkan 17. Veislustjóri verður Sveinbjörn Grétarsson eða Bjössi Greifi. Hann spilar, syngur og skemmtir gestum fram á kvöld. Þá kemur Gunnar Straumland og kveður vísur. Veislumatur frá Galito verður á boðstólnum. Miðaverð er 5000 og greiðist við innganginn en ekki verður posi…Lesa meira

true

Aþena með sigur á Snæfelli í hörkuleik

Snæfell og Aþena-UMFK áttust við í gær í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Fyrir fram var búist við hörkuleik enda bæði lið í efri hluta deildarinnar, Snæfell með 20 stig og Aþena með 16 stig og liðin í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Sú varð raunin og meira…Lesa meira

true

Heima-Skagi fyrir börnin næsta laugardag

Fjölskyldutónleikar með Svavari Knúti & Valgerði Jónsdóttur bæjarlistamanni Akranes 2021 verða í Akraneskirkju laugardaginn 5. mars klukkan 17:00. Tónleikarnir eru liður í Barnamenningarhátíð Vökudaga og eru styrktir af Akraneskaupstað. Fresta þurfti skemmtuninni í nóvember síðastliðnum vegna samkomutakmarkana, en nú er lag. „Fögnum æskunni og fyllum kirkjuna af börnum, söng og gleði,“ segir í tilkynningu. Aðgangur…Lesa meira

true

Norðaustan hríðarveðri spáð

Nú er spáð óveðri víða um land í kvöld og fyrramálið, mánudag, en að þessu sinni verður austan- og norðaustanstæð vindátt. Fyrst mun bresta á með hríðarveðri í Mýrdal á milli klukkan 19 og 21 í kvöld. Hvellurinn gengur síðan til austurs og norðurs í nótt og veldur almennri ófærð mjög víða á landinu. Skafrenningur…Lesa meira

true

Skagamenn stóðu í Álftnesingum

Álftanes og ÍA áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Forsetahöllinni syðra. Heimamenn komust fljótlega í 12:2 í leiknum og Skagamenn hálf ráðvilltir en staðan eftir fyrsta leikhluta var 30:18 Álftanesi í vil. Þessi slaka byrjun ÍA varð þeim að falli í leiknum því þeir voru síst…Lesa meira

true

Skallagrímur átti ekki möguleika gegn Haukum

Skallagrímur og Haukar mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Haukar voru fyrir leikinn í efsta sæti deildarinnar ásamt Hetti frá Egilsstöðum en þessi tvö lið eru nánast örugg um að komast upp í Subway deildina þegar mótinu lýkur í lok mars. Skallagrímur situr sem…Lesa meira