Fréttir

true

Suðaustan hvassviðri spáð á morgun

Enn ein óveðurslægðin nálgast landið og fer á morgun yfir. Gefin hefur verið út gul viðvörun fyrir allt vestan- og sunnanvert landið. Hér við Faxaflóa og Breiðafjörð er viðvörun í gildi frá því skömmu fyrir hádegi og fram undir kvöld. Það verður suðaustan stormur eða rok, 23-28 m/s og snarpar vindhviður við fjöll og slæmt…Lesa meira

true

Kristín Eir er Íþróttamaður Borgfirðings 2021

Fyrsta mótið í KB mótaröðinni hjá hestamannafélaginu Borgfirðingi fór fram í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi um liðna helgi. Keppt var í B flokki; 1. flokki, 2. flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki og pollaflokki. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir þrjá efstu í vali íþróttamanns hestamannafélagsins Borgfirðings fyrir árið 2021. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker var valin íþróttamaður Borgfirðings…Lesa meira

true

Draumavertíð þrátt fyrir ótíð

Emil Freyr Emilsson skipstjóri á beitningarvélarbátnum Lilju SH, sem gerður er út frá Rifi, segir vertíðina núna vera sannkallaða draumavertíð, þrátt fyrir tíðarfarið. Þó er annars slagið farið í víking út á land. „Það er búið að vera algjört mok þegar gefið hefur á sjó,“ segir Emil. „Enginn róður hefur farið undir tíu tonnin og…Lesa meira

true

ÍATV hlýtur fjölmiðlaverðlaun KSÍ

Fulltrúar ÍATV á Akranesi tóku í dag við fjölmiðlaverðlaunum Knattspyrnusambands Íslands fyrir árið 2021. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, afhenti verðlaunin í höfuðstöðvum sambandsins í Laugardal. Í umsögn KSÍ segir m.a. að umhverfi beinna sjónvarpsútsendinga frá knattspyrnuleikjum hafi tekið stakkaskiptum á undanförnum árum og óhætt sé að segja að vefútsendingar, eða netstreymi, séu farnar að leika…Lesa meira

true

Næg verkefni fyrir smíðafyrirtæki á Akranesi

Fram kemur í Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 að umtalsverð eftirspurn hefur verið eftir öllum tegundum íbúðarhúsnæðis í bæjarfélaginu og hefur Akraneskaupstaður átt í fullu fangi við við að mæta þeirri eftirspurn. Nú er staðan sú að metfjöldi íbúða er í byggingu og framundan er úthlutun eða sala á lóðum á Sementsreit, Dalbrautarreit og Skógarhverfi…Lesa meira

true

Rakel á útleið úr bæjarstjórn

Rakel Óskarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar, tilkynnti á Facebook síðu sinni að hún muni ekki gefa kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðismanna fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í maí. Rakel hefur setið í bæjarstjórn síðan 2014, var á sínu fyrra kjörtímabili í fimmta sæti á lista sem hlaut fimm bæjarfulltrúasæti og var því í…Lesa meira

true

Árvekniátak Einstakra barna hefst í dag

Í dag hófst árvekni- og fjáröflunarátak Einstakra barna undir slagorðinu „Með fræðslu kemur skilningur með skilningi kemur stuðningur.“ Átakinu er ætlað að auka samfélagslegan skilning á stöðu barna/ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma/heilkenni. „Við köllum eftir því að samfélagið allt klæði sig í glitrandi fatnað og glimmer mánudaginn 28. febrúar og glitri með okkur – en glimmer…Lesa meira

true

Aflétting allra takmarkana innanlands og á landamærum

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að frá og með föstudeginum 25. febrúar verði öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum vegna heimsfaraldurs Covid-19 aflétt, jafnt innanlands og á landamærunum. Þar með falla brott allar reglur um takmarkanir á samkomum og skólahaldi og einnig krafa um einangrun þeirra sem sýkjast af Covid-19. Heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun sína á fundi ríkisstjórnar…Lesa meira

true

Fjölgun smita hefur áhrif á skólastarf í Stykkishólmi

Á mánudaginn voru rétt tæplega 60 manns í einangrun í Stykkishólmi. Staðan hefur haft áhrif á starf leik- og grunnskóla en alls eru 18 starfsmenn frá vinnu í leikskólanum nú vegna smita. Stjórnendur leikskóla biðla til foreldra og forráðamanna að fylgjast vel með tilkynningum og jafnframt eru þau beðin um að halda börnum heima til…Lesa meira