Fréttir

true

Veðurstöð á Bröttubrekku liggur niðri eftir ofsaveðrið í gær

Mastur fyrir veðurstöð Vegagerðarinnar á Bröttubrekku brotnaði og datt niður í gærkvöldi. Vindhviður fóru í 58 m/s á svæðinu í gærkvöldi en síðustu mælingar frá stöðinni eru frá því kl. 23:10 í gærkvöldi en þá var vindhraði 23,5 m/s og vindhviður 41,2 m/s. Að sögn Sæmundar Kristjánssonar hjá Vegagerðinni er þó ekki víst hvort mastrið…Lesa meira

true

Snæbjörn Gíslason er 104 ára í dag

Snæbjörn Gíslason á Akranesi er elstur núlifandi karlmanna á Íslandi. Hann er 104 ára í dag, fæddur 22. febrúar 1918. Snæbjörn er hógvær og vill helst ekki gera mikið úr þessum áfanga, en starfsfólk á Hjúkrunarheimilinu Höfða, þar sem hann býr, fékk leyfi hans til að senda Skessuhorni mynd og smá frétt í tilefni dagsins.…Lesa meira

true

Þakdúkur fauk af gamla héraðsskólahúsinu

Í rokinu í gærkvöldi losnaði og fauk þakdúkur af húsi Héraðsskólans í Reykholti, af þeim hluta sem nú hýsir varaeintakasafn Landsbókasafns Íslands. Að sögn heimamanna er ekki talin hætta á að regnvatn komist inn í húsið, en undir dúknum er timbur og steypt þakplata. Gengið verður í lagfæringar þegar veður gengur niður.Lesa meira

true

Víða rafmagnstruflanir

Í gærkvöldi og fram á daginn í dag hefur víða verið rafmagnslaust á Vesturlandi, sökum djúprar lægðar sem gekk yfir landið með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu. Um tíma í gærkvöldi var straumlaust í Borgarfirði og á Snæfellsnesi og á sama tíma á norðanverðri Hvalfjarðarströnd. Rafmagnsbilun varð einnig á Landsnetinu og því straumlaust frá Glerárskógi í…Lesa meira

true

Óverulegt tjón og lítið um útköll af völdum óveðursins

Svo virðist sem lægðin sem gekk yfir landið í gær og nótt hafi haft óveruleg áhrif hér á Vesturlandi, jafnvel þótt vindhraði hafi mælst mikill, einkum í gærkvöldi. Fá mál eru færð til bókar í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi. Helst að ökumenn hafi lent í vandræðum. Hringt var í Neyðarlínuna um kvöldmatarleytið og tilkynnt um…Lesa meira

true

Snjóflóð lokar Klofningsvegi

Stórt snjóflóð féll í morgun við Heinaberg á Skarðsströnd og lokar Klofningsvegi. Flóðið er um 150 metra breitt á vegi og um 2,2 metrar þar sem það er dýpst.Lesa meira

true

Skólahaldi aflýst í Snæfellsbæ

Veðurspáin fyrir daginn er slæm fyrir vestanvert Snæfellsnes. „Við sjáum það fyrir okkur að nemendur og starfsfólk komist til skóla en erfiðara eða illmögulegt verður að komast heim fyrr en seint í dag. Jafnframt er mikið um veikindi meðal nemenda og starfsfólks. Af þeim sökum aflýsum við skóla í dag,“ segir Hilmar Már Arason skólastjóri…Lesa meira

true

Vill að vegur yfir Grunnafjörð verði valkostur við ákvörðun um framtíðar vegstæði

Í aðsendri grein í Skessuhorni í síðustu viku, sem ber heitið Björgum sveitinni, skrifar Ólafur Óskarsson um hugmyndir um veglínu nýs Vesturlandsvegar um Hvalfjarðarsveit. Hann, ásamt fleiri eigendum lands á Beitistöðum, segist hafa skoðað hugmyndir og tillögur VSÓ fyrir Vegagerðina, sem unnar voru fyrir tilstuðlan sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, um vegarlagningar um sveitarfélagið og tengjast aðalskipulagsgerð. Mótmælir…Lesa meira

true

Stefna að blandaðri byggð í Brákarey

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur ákveðið að auglýsa eftir áhugasömum samstarfsaðilum um skipulagsmál og uppbyggingu í Brákarey, svo sem með stofnun þróunarfélags, þar sem unnið verður úr þeim hugmyndum og íbúafundum sem haldnir hafa verið undanfarin ár. „Í slíkri uppbyggingu telur byggðarráð mikilvægt að haldið sé í sérkenni eyjunnar, þar sem meðal annars sé litið til þess…Lesa meira

true

Var dregin út í eldvarnagetraun

Verðlaun voru veitt í síðustu viku í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutingsmanna. Sigurður Þór Elísson eldvarnaeftirlitsmaður hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðar fór þá í Grundaskóla og afhenti Laufeyju Svanbergsdóttur nemanda í 3. bekk verðlaun. Nafn hennar hafði verið dregið út og fékk Laufey að launum viðurkenningarskjal og gjafakort í Spilavinum.Lesa meira