Fréttir

true

Lítið eitt minni loðnukvóti en upphaflega var gefinn út

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni verði ekki meiri en 869.600 tonn. Það þýðir 34.600 tonna lækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 1. október 2021. Ráðgjöfin byggir á samteknum niðurstöðum á mælingum á stærð veiðistofns í haustleiðangri og leiðöngrum sem fóru fram frá 19. janúar til 14. febrúar. Útgerðarfyrirtækin og aðrir hagsmunaaðilar…Lesa meira

true

Samþykkja hönnunarsamkeppni allt að þrjú þúsund manna íbúðabyggðar handan Borgarvogs

Á vinnufundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar með starfsmönnum skipulags- og byggingardeildar nýlega komu fram áhugaverðar hugmyndir um staðsetningu nýrrar íbúðarbyggðar í Borgarnesi. Sömuleiðis var rætt hvernig best yrði staðið að framgangi hugmyndavinnu vegna slíks svæðis. Á fundi byggðarráðs í gær var málið tekið upp og sveitarstjóra falið að leita til Arkitektafélags Íslands og undirbúa samkeppni um heildarskipulagningu…Lesa meira

true

546 nú með veiruna á Vesturlandi

Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi eru nú 546 manns í einangrun með Covid-19 í landshlutanum. Það jafngildir að um 3,4% íbúa séu veikir. Eftir að sóttvarnaráðstöfunum var breytt má segja að veiran leiki lausum hala. Þannig eru bæði nemendur og starfsfólk fjölmargra skólastofnana veikir, auk annarra. Flestir eru veikir á Akranesi, þar sem 341…Lesa meira

true

Gul viðvörun annað kvöld

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Faxaflóasvæðið vegna austan hvassviðris síðdegis á morgun, laugardag og til hádegis á sunnudaginn. Það verður austan 15-23 m/s og skafrenningur á svæðinu. Lélegt skyggni og slæm akstursskilyrði og því má búast við samgöngutruflunum.Lesa meira

true

Skallagrímsleik frestað

Þremur leikjum í 1. deild karla og kvenna í körfuknattleik hefur verið frestað vegna Covid-19 smit. Þar á meðal er leik karlaliðs Hamars og Skallagríms sem var á dagskrá í kvöld. Honum var frestað vegna smita hjá Skallagrími. Þá var leik Sindra og Hrunamanna, sem var á dagskrá í 1. deild karla í kvöld, einnig…Lesa meira

true

Pokar að láni í Hyrnutorgi í Borgarnesi

Fyrir nokkrum árum fór í gang verkefnið Egla tekur til hendinni. Um er að ræða átak til að vekja athygli á skaðsemi plasts fyrir lífríkið og hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að draga úr notkun á einnota plasti. Í samstarfi við Ölduna í Borgarnesi sem er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu voru saumaðir fjölnota…Lesa meira

true

Miðstjórn ASÍ fer fram á rannsókn á ríkisstuðningi við fyrirtæki

Miðstjórn Alþýðusamband Íslands krefst þess að fram fari rannsókn á meðferð opinberra fjármuna í tengslum við stuðningsúrræði til fyrirtækja vegna efnahagslegra áhrifa COVID- faraldursins. Þetta kemur fram í pistli á vefsíðu Alþýðusambandsins en þar segir að þegar ríkishirslurnar voru opnaðar til að veita fyrirtækjum ríkisstuðning af óþekktri stærð hafi Alþýðusambandið strax farið fram á að…Lesa meira

true

Listería í reyktum laxi og reyktum regnboga

Listeria hefur greinst í sýnum af reyktum laxi og reyktum regnboga sem framleiddur var undir nafni Ísfirðings. Dreifing og sala afurðanna hefur verið stöðvuð. Reykti laxinn ætti því ekki að vera í dreifingu í verslunum en neytendur gætu átt vöruna í frysti eða kæli.  Vörurnar hafa verið til sölu í Nettó, Kjörbúðinni, Krambúðinni, Iceland, Melabúðinni,…Lesa meira

true

Yfir hundrað þúsund smit

Í gær var hundrað þúsund smita múrinn brotinn á Íslandi. Nú hafa yfir hundrað þúsund greinst smitaðir af kórónuveirunni frá upphafi faraldursins eða um fjórðungur þjóðarinnar. Í gær greindust 2.317 smitaðir af kórónuveirunni. Um er að ræða 500 færri tilfelli heldur en í fyrradag þegar met var slegið. Alls hafa nú 103.086 greinst smitaðir af…Lesa meira

true

Leiðin Þórisstaðir – Hallsteinsnes boðin út

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í nýbyggingu Vestfjarðavegar í Þorskafirði á um 10,4 km kafla og um 0,2 km kafla á Djúpadalsvegi. Eins og fram kemur í útboðinu er um að ræða áframhald af þverun Þorskafjarðar sem unnið er við núna. Þá er eftir að bjóða út þveranir Djúpafjarðar og Gufufjarðar til að ljúka við…Lesa meira