{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi eru nú 546 manns í einangrun með Covid-19 í landshlutanum. Það jafngildir að um 3,4% íbúa séu veikir. Eftir að sóttvarnaráðstöfunum var breytt má segja að veiran leiki lausum hala. Þannig eru bæði nemendur og starfsfólk fjölmargra skólastofnana veikir, auk annarra. Flestir eru veikir á Akranesi, þar sem 341 er skráður í einangrun. Í Borgarbyggð eru 89 veikir, 51 í Stykkishólmi, 29 í Snæfellsbæ, 28 í Grundarfirði og átta í Dalabyggð.",
"innerBlocks": []
}