Yfirlitsmynd yfir vegarkaflann sem er í útboðinu. Ljósm. af vef Reykhólahrepps.

Leiðin Þórisstaðir – Hallsteinsnes boðin út

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í nýbyggingu Vestfjarðavegar í Þorskafirði á um 10,4 km kafla og um 0,2 km kafla á Djúpadalsvegi. Eins og fram kemur í útboðinu er um að ræða áframhald af þverun Þorskafjarðar sem unnið er við núna. Þá er eftir að bjóða út þveranir Djúpafjarðar og Gufufjarðar til að ljúka við þennan hluta Vestfjarðavegar. Gert er ráð fyrir að leggja háspennustreng og ídráttarrör fyrir ljósleiðara meðfram veginum. Til að viðhalda sem best staðbundnum gróðri á vinnusvæðinu eru fyrirmæli í útboðsgögnum um að taka upp gróðurtorfur úr vegstæði og af skeringarsvæðum og setja þær aftur við lok frágangs. Samkvæmt útboðsgögnum skal verkinu að fullu lokið 15. október 2023.",
  "innerBlocks": []
}