
Merkið „Egla tekur til hendinni,“ er hannað af Heiði Hörn Hjartardóttur.
Pokar að láni í Hyrnutorgi í Borgarnesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fyrir nokkrum árum fór í gang verkefnið Egla tekur til hendinni. Um er að ræða átak til að vekja athygli á skaðsemi plasts fyrir lífríkið og hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að draga úr notkun á einnota plasti. Í samstarfi við Ölduna í Borgarnesi sem er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu voru saumaðir fjölnota pokar sem lágu frammi í verslunum og fólk gat fengið að láni í stað þess að kaupa einnota burðarplastpoka. Frá þessu er sagt á vefsíðu Borgarbyggðar.\r\n\r\nMikið vatn hefur nú runnið til sjávar, og einnota burðarplastpokar eru ekki lengur sjáanlegir í verslunum. Þó hefur verið ákveðið að leggja til fleiri poka að láni þar sem verkefnið vakti mikla lukku á sínum tíma. Aldan hefur nú saumað fleiri poka sem liggja nú frammi í Hyrnutorgi í Borgarnesi og er öllum íbúum velkomið að fá lánaða poka óháð því hvaða verslun er farið í.\r\n\r\nUmrætt verkefni hóf göngu sína árið 2017 og voru allar stofnanir Borgarbyggðar heimsóttar á sínum tíma til þess að vekja athygli á skaðsemi plasts fyrir lífríkið og okkur sjálf. Stofnanirnar hafa markvisst verið að draga úr notkun á einnota vörum og er starfsfólk hugmyndaríkt þegar kemur að nýtingu úrgangs sem efniviðar til ýmissa nota.\r\n\r\nNánar má fræðast um tilgang og markmið verkefnisins á vefsíðu Borgarbyggðar.",
"innerBlocks": []
}