Sýnatökuhúsið við Þjóðbraut á Akranesi. Ljósm. vaks

Yfir hundrað þúsund smit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær var hundrað þúsund smita múrinn brotinn á Íslandi. Nú hafa yfir hundrað þúsund greinst smitaðir af kórónuveirunni frá upphafi faraldursins eða um fjórðungur þjóðarinnar. Í gær greindust 2.317 smitaðir af kórónuveirunni. Um er að ræða 500 færri tilfelli heldur en í fyrradag þegar met var slegið. Alls hafa nú 103.086 greinst smitaðir af veirunni frá upphafi. Rúmlega 4.721 sýni var tekið til greiningar innanlands í gær og var því hlutfall jákvæðra sýna því um 50 prósent. 885 sýni voru tekin á landamærunum og greindust þar 92 smitaðir.\r\n\r\nAlls eru nú 11.880 í einangrun með virkt smit og fjölgar þeim um fjögur hundruð milli daga. Á Vesturlandi eru nú 546 í einangrun og þar af eru 341 á Akranesi, 89 í Borgarnesi og 51 í Stykkishólmi. Í Grundarfirði eru alls 29 í einangrun, í Ólafsvík eru 28 og átta í Búðardal. Til viðmiðunar eru 818 á Suðurnesjum, 909 á Suðurlandi, 190 á Austurlandi og 1819 á Norðurlandi eystra. Á Norðurlandi vestra eru 145 í einangrun, 177 á Vestfjörðum og 210 óstaðsettir. Inniliggjandi á spítala eru nú 52 manns, þar af 45 á Landspítala. Fjórir eru á gjörgæslu og einn í öndunarvél.",
  "innerBlocks": []
}
Yfir hundrað þúsund smit - Skessuhorn