Fréttir

true

Fylgdarakstur meðan veður leyfir

Á meðan veður leyfir er áætlað að hafa fylgdarakstur á Kjalarnesi, frá Esjumelum að Hvalfjarðargöngum og til baka, í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Vegagerðin var að senda. Uppfært núna klukkan 17:30. Veður hefur versnað á Kjalarnesi og hefur fylgdarakstri verið hætt.Lesa meira

true

Kosið um ný gatnaheiti á Sementsreit

Akraneskaupstaður leitar nú aðstoðar íbúa með að velja gatnaheiti á Sementsreitnum og er um að ræða fimm gatnaheiti en kosningin er í tveimur liðum. Annars vegar er kosið um gatnaheiti á götu sem á mynd er titluð Gata A og svo hins vegar er kosið um gatnaheiti á hinum fjórum götunum saman en þar er…Lesa meira

true

Spáð vaxandi vindi síðdegis

Á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á Reykjanesbraut er nú vaxandi vindhraði og um og yfir 20 m/s frá því um klukkan 16 í dag. Þá hlánar og vindur gengur alveg niður nærri miðnætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni sem hvetur fólk til að fylgjast með upplýsingum um færð og veður áður en lagt…Lesa meira

true

Skólahaldi hætt um hádegisbil

Leiðindaveður er nú í Snæfellbæ og á að bæta vel í vind þegar líður á daginn. Vegna veðurs og veðurspár var skólahaldi í Snæfellsbæ hætt um hádegisbil í dag. Færð á vegum innanbæjar í Ólafsvík er tekin að spillast. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar börn í GSN í Ólafsvík vera á leið úr skólanum…Lesa meira

true

Viðbragðsaðilar á ferðinni á 112 deginum

Viðbragðsaðilar í Snæfellsbæ óku um sveitarfélagið á sunnudaginn með blikkandi ljósum og sírenum í tilefni af 112 deginum sem var síðasta föstudag. Endaði fjörið í björgunarstöðinni Von á Rifi þar sem gestum gafst kostur á að skoða hin ýmsu tæki viðbragðsaðila ásamt því að í boði var Svali fyrir börnin. Á hverju ári er lögð…Lesa meira

true

Ófærð í þéttbýli og stofnvegir lokaðir

Snjóþekja, stórhríð og lokað, eru orðin sem Vegagerðin notar nú til að lýsa ástandinu á vegum hér suðvestanlands í morgun. Kjalarnesið er meðal þeirra stofnvega sem eru lokaðir, sömuleiðis Hellisheiði og fleiri vegir á Suðurlandi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú í morgun segir að um allt suðvestanvert landið verði mjög svo krefjandi aðstæður fyrir vegfarendur…Lesa meira

true

Nýtt hringtorg í undirbúningi við Akranesveg

Í fundargerð skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar frá 31. janúar síðastliðinn kemur fram beiðni til Vegagerðarinnar um að hefja ferli við undirbúning að gerð nýs hringtorgs við Akranesveg. Þar segir að Skógahverfið á Akranesi sé í hraðri uppbyggingu og því mikilvægt út frá nokkrum sjónarmiðum að hringtorg komi sem allra fyrst á þessum stað. Í fyrsta…Lesa meira

true

Samráðshópur um öldrunarmál á Vesturlandi kynnti skýrslu sína

Í ársbyrjun 2020 var skipaður samráðshópur um öldrunarmál á Vesturlandi með það markmið að geta staðið undir hækkandi aldri þjóðarinnar. Hópurinn tók til starfa í september sama ár og hélt nýverið kynningu á lokaskýrslu í gegnum Teams fjarfundabúnað. Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmda Brákarhlíðar og formaður samráðshópsins, fór yfir þau verkefni sem hópurinn vann að. Eitt…Lesa meira

true

Slaufunarmenning meðal umfjöllunarefnis á Jafnréttisdögum háskólanna

Slaufunarmenning, stafrænt ofbeldi, stéttskipting í íslensku ljósi, viðhorfsbreytingar tengdar #metoo, frjósemisréttindi fatlaðra kvenna, valdójafnvægi innan íþrótta, textíll og hringrásarkerfi sem jafnréttismál, ljósmyndasýning tengd mannúðarstörfum kvenna og staða jafnréttismála innan háskóla landsins, er meðal þeirra fjölbreyttu umfjöllunarefna sem í boði verða á árlegum Jafnréttisdögum háskólanna á Íslandi. Þeir fara fram dagana 14.-18. febrúar og verða að…Lesa meira

true

Suðaustan stormur og snjókoma á morgun

Á morgun, mánudaginn 14. febrúar, er búið að gefa út gula viðvörun fyrir sunnan- og vestanvert landið. Spáð er suðaustan hvassviðri eða stormi með talsverðri ofankomu. Á spásvæðinu Faxaflóa gengur í suðaustan hvassviðri eða storm, 15-23 m/s um miðjan daginn og staðbundið enn hvassara, eins og t.d. á Kjalarnesi, Reykjanesi og við Hafnarfjall. Snjókoma á…Lesa meira