Þannig er nú umhorfs á Jaðarsbraut á Akranesi. Einungis jeppafært.

Ófærð í þéttbýli og stofnvegir lokaðir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snjóþekja, stórhríð og lokað, eru orðin sem Vegagerðin notar nú til að lýsa ástandinu á vegum hér suðvestanlands í morgun. Kjalarnesið er meðal þeirra stofnvega sem eru lokaðir, sömuleiðis Hellisheiði og fleiri vegir á Suðurlandi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú í morgun segir að um allt suðvestanvert landið verði mjög svo krefjandi aðstæður fyrir vegfarendur í dag. Það hvessir svo þegar kemur fram á daginn, fyrst með skafrenningi, en síðan hlánar á láglendi. Gul viðvörun er í gildi fyrir allt suðvesturland þegar líða tekur á daginn vegna hvassviðris og hríðar.\r\n\r\nTöluvert hefur snjóað á Vesturlandi í nótt og morgun og þungfært í þéttbýli. Í fyrsta skipti í nokkur ár er einungis jeppafært í íbúðagötum innanbæjar á Akranesi, en búið er að ryðja snjó af stofngötum.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-51098\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Ofaert-innanbaejar-og-stofnvegir-lokadir_1-600x424.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Ófærð í þéttbýli og stofnvegir lokaðir - Skessuhorn