Á myndinni með Agli Míó eru slökkviliðsmennirnir Emanúel Þórður Magnússon, Matthías Páll Gunnarsson, Birgir Tryggvason og Kjartan Hallgrímsson. Ljósm. þa.

Viðbragðsaðilar á ferðinni á 112 deginum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Viðbragðsaðilar í Snæfellsbæ óku um sveitarfélagið á sunnudaginn með blikkandi ljósum og sírenum í tilefni af 112 deginum sem var síðasta föstudag. Endaði fjörið í björgunarstöðinni Von á Rifi þar sem gestum gafst kostur á að skoða hin ýmsu tæki viðbragðsaðila ásamt því að í boði var Svali fyrir börnin.\r\n\r\nÁ hverju ári er lögð áhersla á ákveðið málefni við þetta tilefni og að þessu sinni var það að vinna gegn hvers konar ofbeldi en ofbeldishegðun hefur farið vaxandi síðustu tvö ár sem Covid faraldurinn hefur geisað. Við þetta sama tækifæri afhenti Slökkvilið Snæfellsbæjar viðurkenningu fyrir eldvarnagetraun en á hverju ári heimsækja slökkviliðsmenn nemendur í 3. bekk grunnskólanna og fræða þá um eldvarnir. Börnin fá svo með sér heim handbók um eldvarnir heimilisins og söguna af Brennu-Vargi og Loga og Glóð. Þeim gefst einnig kostur á að taka þátt í eldvarnagetrauninni en heppnir þátttakendur fá svo jafnan afhent vegleg verðlaun á 112 deginum og var engin breyting á því í ár. Að þessu sinni var það Egill Míó Jóhannsson sem var dreginn út og fékk hann viðurkenninguna sína afhenta við þetta tækifæri.",
  "innerBlocks": []
}
Viðbragðsaðilar á ferðinni á 112 deginum - Skessuhorn