Fréttir

true

Björgunarmiðstöðin í Borgarnesi að lokast

Í gær var unnið við þakglugga og glerjun í nýrri Björgunarmiðstöð Brákar við Fitja í Borgarnesi. Húsið er byggt úr yleiningum og á límtréssperrum, er um 760 fermetrar að stærð, og fellur vel að landinu í slakkanum neðan við fyrrum mjólkursamlagshús og Steypustöðina. Í suðurenda hússins verður m.a. fundarsalur, skrifstofa, búningaaðstaða og búnaðargeymsla. Auk þess…Lesa meira

true

Fyrsti loðnufarmurinn sem veiddur er í nót kom með Bjarna Ólafssyni

Klukkan sex í morgun kom Bjarni Ólafsson AK til Neskaupstaðar með fyrsta loðnufarminn sem þangað berst á vertíðinni sem veiddur er í nót. Hingað til hafa loðnuskipin veitt í flotvörpu en nú eru þau að taka grunnnætur og flotvörpuveiðunum að ljúka. Barði NK er að landa á Seyðisfirði 1.900 tonnum og er það væntanlega síðasti…Lesa meira

true

Sveitarstjórn Dalabyggðar fordæmir lokun bankaútibúsins

Sveitarstjórn Dalabyggðar fjallaði um fyrirhugaða lokun útibús Arion banka í Búðardal á fundi sínum í gær. Rifjað var upp að forsvarsmenn bankans hafi fullyrt við síðustu breytingar á starfsemi útibúsins að ekki stæði til að loka útibúinu í Búðardal. Í umræðum benti Kristján Sturluson sveitarstjóri á að í fundargögnum væri afrit af samningi sem gerður…Lesa meira

true

Sóttkví vegna Covid-19 felld brott frá miðnætti í kvöld

Hátt í tíu þúsund manns losna undan sóttkví í kvöld þegar reglur um sóttkví falla brott með reglugerð. Á miðnætti tekur gildi reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur í sér tilslakanir, líkt og nánar er tíundað hér að neðan. Í dag verður birt reglugerð sem felur í sér afnám sóttkvíar vegna smita innanlands. Þessar breytingar taka…Lesa meira

true

112 dagurinn er í dag

Áhersla 112 dagsins sem haldinn er um land allt í dag föstudaginn 11. febrúar er að þessu sinni lögð á að vinna gegn hverskonar ofbeldi, en ofbeldishegðun hefur farið vaxandi þau tvö ár sem Covidfaraldurinn hefur geysað. Í tilefni dagsins miðlar Neyðarlínan fræðsluefni á gagnvirku myndbandi um rétt og skilvirk samskipti við neyðarverði sem eru…Lesa meira

true

FVA keppir í Gettu betur í kvöld

Fjölbrautaskóli Vesturlands mætir til leiks í Gettu betur í kvöld í annarri viðureign átta liða úrslita spurningakeppninnar og mætir þar liði Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Mikil spenna er að magnast upp fyrir viðureign kvöldsins, svo mikil að flugeldum var skotið upp í tilefni þess í gærkvöldi á Akranesi. Í fyrstu umferðinni sigraði Verzlunarskóli Íslands lið Fjölbrautaskóla…Lesa meira

true

Leik ÍA og Hrunamanna frestað

Leik ÍA og Hrunamanna í 1. deild karla í körfubolta, sem fara átti fram í kvöld á Flúðum, hefur verið frestað. Leikmenn í hópi Skagamanna eru að losna úr einangrun og sóttkví og ekki þótti fært að leika í kvöld. Þá hefur leik ÍR og Aþenu/UMFK í 1. deild kvenna, sem var á dagskrá á…Lesa meira

true

Fella maígjalddaga bílatrygginga Sjóvá niður

Tryggingafélagið Sjóvá hefur ákveðið að fella niður maígjalddaga lögboðinna ökutækjatrygginga einkabíla viðskiptavina sinna á þessu ári, þótt tryggingarnar verði áfram í fullu gildi. „Sjóva felldi niður iðgjöld ökutækjatrygginga í maí 2020, þegar lokanir í samfélaginu vegna covid stóðu sem hæst. Afkoma fyrirtækisins hefur verið góð og tjónaþróun hagfelld,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Netsamband fór af í Grundarfirði

Starfsmenn Telnets stóðu í ströngu í gær þegar þeir þurftu að að standa í viðgerðum fram í myrkur við Grundargötu í Grundarfirði. Samkvæmt heimasíðu Mílu fór strengur í sundur sem olli því að netsamband rofnaði víða í bænum. Viðgerð lauk um klukkan átta og komst netsamband á að nýju.Lesa meira

true

Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt á einum vettvangi

Stafrænn háskóladagur verður haldinn 26. febrúar næstkomandi frá klukkan 12 til 15. Þá gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér allt háskólanám sem er í boði á landinu á einum vettvangi. Á vefsíðunni http://www.haskoladagurinn.is er nú mögulegt að leita í öllum námsleiðum sem eru í boði í íslenskum háskólum. „Nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og…Lesa meira