Dálítil hríðarmugga var þegar blaðamaður kíkti á húsið í gær. Ljósm. mm.

Björgunarmiðstöðin í Borgarnesi að lokast

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær var unnið við þakglugga og glerjun í nýrri Björgunarmiðstöð Brákar við Fitja í Borgarnesi. Húsið er byggt úr yleiningum og á límtréssperrum, er um 760 fermetrar að stærð, og fellur vel að landinu í slakkanum neðan við fyrrum mjólkursamlagshús og Steypustöðina. Í suðurenda hússins verður m.a. fundarsalur, skrifstofa, búningaaðstaða og búnaðargeymsla. Auk þess er gert ráð fyrir að aðgerðastjórn í stærri björgunaraðgerðum í landshlutanum fái fasta aðstöðu í húsinu. Í norðurenda hússins er hærra til lofts og þar verður tækjasalur. Að sögn Jakobs Guðmundssonar, gjaldkera Brákar og formanns byggingarnefndar, er stefnt að því um helgina að koma stóru fellihurðunum í húsið og verður það þar með orðið fokhelt. Þá verður eftir ýmiss frágangur, svo sem að koma fyrir áfellum og vinna við flotun og flísalögn gólfa. Stefnir björgunarsveitin nú að innflutningi í húsið 1. apríl í vor.\r\n\r\nÞrátt fyrir að framkvæmdin hafi verið að fullu fjármögnuð, með eigin fé og lánsloforði, segir Jakob gleðilegt að geta sagt frá því að nýverið var skrifað undir kauptilboð um sölu á félagsaðstöðu Brákar í Brákarey, en með eðlilegum fyrirvara um fjármögnun kaupandans. Sú sala létti verulega á fjárhagshliðinni við stórframkvæmd sem þetta er. Þá hafa fjölmargir létt undir með björgunarsveitinni við verkefnið, bæði í formi vinnuframlags og peningagjafa. Jakob segir að almenningur sé sérlega velviljaður sveitinni og fyrir það þakkar björgunarsveitarfólk af heilum hug. „Allur þessi stuðningur er ómetanlegur og sýnir vonandi að við erum að gera gagn hér í samfélaginu,“ segir Jakob.\r\n\r\n<em>Minnt er á söfnunarreikning Brákar fyrir húsbygginguna. Hann er: 0326-22-2220, kt. 570177-0369.</em>\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"51060,51061,51062,51063\"]\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Björgunarmiðstöðin í Borgarnesi að lokast - Skessuhorn