Fréttir

true

Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt á einum vettvangi

Stafrænn háskóladagur verður haldinn 26. febrúar næstkomandi frá klukkan 12 til 15. Þá gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér allt háskólanám sem er í boði á landinu á einum vettvangi. Á vefsíðunni http://www.haskoladagurinn.is er nú mögulegt að leita í öllum námsleiðum sem eru í boði í íslenskum háskólum. „Nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og…Lesa meira

true

Verslunin @home flytur á nýjan stað

Í þessari viku skrifuðu eigendur verslunarinnar @home á Akranesi undir kaupsamning á hluta húsnæðisins á Kirkjubraut 54 þar sem áður var til húsa Harðarbakaríið til fjölda ára. Alls er þetta um 160 fermetra húsnæði sem þau festa kaup á. Um er að ræða tvö hólf austan megin á neðstu hæð hússins en í vestari endanum…Lesa meira

true

Vilja taka vel á móti gestum skemmtiferðaskipa á Akranesi

Áfanga- og markaðssvið (Á&M) Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi ásamt Akraneskaupstað og Faxaflóahöfnum taka nú þátt í samstarfsverkefni um gæði í móttöku á skemmtiferðaskipum á Akranesi. Þetta er NORA verkefni sem kemur í gegnum Ferðamálastofu og er samstarfsverkefni við The Association of Arctic Expedition Cruise Operators (AECO), þar sem unnið er með nokkrum höfnum á Íslandi,…Lesa meira

true

Gufan í Jaðarsbakkalaug opnuð á ný

Í vikunni var opnað útigufubað í Jaðarsbakkalaug á Akranesi. Framkvæmdir hófust snemma á síðasta ári við að breyta karla- og kvennaklefunum í Jaðarsbakkalaug. Gufuklefarnir sem voru þar voru fjarlægðir og ákveðið að setja gufubaðsklefa út, á móts við vaðlaugina. Sú framkvæmd hefur tekið tímana tvenna og gárungarnir á Akranesi töldu líklegast að í ferlinu hefði…Lesa meira

true

Vill að íslenskir vínsalar sitji við sama borð og erlendir

Gildandi áfengislöggjöf heimilar í dag að Íslendingar geti keypt áfengi á netinu í gegnum erlend fyrirtæki en tryggir ekki að Íslendingar geti keypt áfengi á netinu af íslenskum fyrirtækjum. Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram frumvarp sem heimila mun frjálsa netverslun með áfengi á Íslandi. Frumvarpinu er ætlað að rétta þennan halla gagnvart íslenskum…Lesa meira

true

Guðfinnur Þór í Aftureldingu

Afturelding hefur fengið Skagamanninn Guðfinn Þór Leósson til liðs við sig fyrir komandi tímabil en Afturelding mun leika í 1. deild karla, Lengjudeildinni, í knattspyrnu í sumar eins og síðustu þrjú tímabil. Guðfinnur Þór er 22 ára miðjumaður, uppalinn hjá ÍA, en kemur til Aftureldingar frá Víkingi Ólafsvík þar sem hann spilaði 20 leiki og…Lesa meira

true

Yfir tvö þúsund manns greindust innanlands í gær

Alls greindust 2.167 með kórónuveiruna innanlands í gær og fjórtán á landamærum. 9.734 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 10.100 í gær. 9.619 eru nú í sóttkví en voru 8.763 í gær og þá er 201 nú í skimunarsóttkví. Á Vesturlandi eru nú 363 í einangrun en voru 346 á þriðjudaginn. Í sóttkví…Lesa meira

true

Sakavottorð afgreidd samstundis

Allir landsmenn geta nú sótt sér stafrænt sakavottorð á vef sýslumanna á island.is/syslumenn. Með rafrænum skilríkjum geta landsmenn sótt stafrænt sakavottorð óháð stöðu í sakaskrá. Áður var þessi þjónusta einungis í boði ef sækja þurfti einfalt eða hreint sakavottorð.  Umsóknarferlið er tengt nýju greiðslukerfi Ísland.is og er vottorðið afhent jafnharðan í lokaskrefi umsóknarinnar. Vottorðið verður…Lesa meira

true

Greiða út um mánaðamótin áburðarstuðning til bænda

Matvælaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um ráðstöfun 700 milljóna króna framlags í fjárlögum 2022 til að koma til móts við aukinn kostnað bænda vegna áburðarkaupa. Áburður á alþjóðavísu hefur hækkað um 93% frá síðasta ári. Áætluð hækkun hérlendis frá síðasta ári er um 87% samkvæmt mati Hagstofunnar fyrir verðlagsgrundvöll kúabús. Matvælaráðuneytið gerir ráð fyrir að verja…Lesa meira

true

Reiknivél fyrir húsaleigu

Samtök leigjenda á Íslandi hafa sett upp reiknivél á netinu sem sýnir viðmiðunarverð húsaleigu. Þar má sjá eftir hverfum, byggðarlögum og íbúðastærð viðmiðunarverð markaðsleigu, en einnig viðmiðunarverð óhagnaðardrifinna leigufélaga og „okurmörk“, sem er leiguverð í algjörum efri mörkum hins siðlega. Viðmiðunarverð Samtaka leigjenda byggir á útreikningum á kostnaði við kaup, viðhald og rekstur húsnæðis. Grunnurinn…Lesa meira