Yfir tvö þúsund manns greindust innanlands í gær

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alls greindust 2.167 með kórónuveiruna innanlands í gær og fjórtán á landamærum. 9.734 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 10.100 í gær. 9.619 eru nú í sóttkví en voru 8.763 í gær og þá er 201 nú í skimunarsóttkví. Á Vesturlandi eru nú 363 í einangrun en voru 346 á þriðjudaginn. Í sóttkví eru 416 en voru á þriðjudaginn 392 á Vesturlandi. Ekki eru komnar nýjar tölur sem sýna skiptingu eftir bæjarfélögum á Vesturlandi.\r\n\r\nNítján prósent af þeim sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu og 81 prósent utan sóttkvíar. 38 eru nú á sjúkrahúsi með Covid-19 en voru 34 í gær. Þrír eru á gjörgæslu, sami fjöldi og í gær.\r\n\r\nAlls hafa 83.942 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar árið 2020 og hefur 51 látist á Íslandi vegna Covid-19 frá upphafi faraldursins.",
  "innerBlocks": []
}
Yfir tvö þúsund manns greindust innanlands í gær - Skessuhorn