Reiknivél fyrir húsaleigu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samtök leigjenda á Íslandi hafa sett upp reiknivél á netinu sem sýnir viðmiðunarverð húsaleigu. Þar má sjá eftir hverfum, byggðarlögum og íbúðastærð viðmiðunarverð markaðsleigu, en einnig viðmiðunarverð óhagnaðardrifinna leigufélaga og „okurmörk“, sem er leiguverð í algjörum efri mörkum hins siðlega.\r\n\r\nViðmiðunarverð Samtaka leigjenda byggir á útreikningum á kostnaði við kaup, viðhald og rekstur húsnæðis. Grunnurinn er kaupverð íbúða samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár, en síðan heldur utan um þinglýsta kaupsamninga. Byggt er á almennum lánakjörum á fjármálamarkaði, kostnaði stærri leigufélaga vegna greiðslufalls og rekstrar, viðhalds og opinberra gjalda. Reiknað er með að leigusalar leggi til eigið fé til kaupanna og það ávaxtist eftir því sem íbúðaverð hækkar en að húsaleigan standi undir rekstri og endurgreiðslu lána á mislöngum tíma.\r\n\r\nSambærilegar reiknivélar leiguverðs eru til í öllum nágrannalöndum okkar. Þær eru ein af forsendum þess að hægt sé að byggja upp siðaðan leigumarkað. Víða eru það opinberir aðilar sem halda utan um reiknivélarnar, sums staðar eru þær hluti af samningum leigjendasamtaka og leigufélaga og annars staðar eru þær einvörðungu á vegum samtaka leigjenda, eins og raunin er hér. Slíkt er eðlilegt og á sér mörg fordæmi í sögunni. Verkamannafélagið Dagsbrún gaf til dæmis út vinnutaxta fyrir rúmri öld áður en félaginu tókst að semja við viðmælendur sína.\r\n\r\n„Stjórnvöld á Íslandi hafa gert óbeislaðan leigumarkað hérlendis að leikvelli fyrir braskara og okrara. Stjórnlaus leigumarkaður hefur leit til þess að of há leiga er helsti vandi um 30 þúsund fjölskyldna í landinu. Í stað þess að temja þennan markað svo hann þjóni almenningi hafa stjórnvöld fallist á að húsnæði séu tæki til auðsöfnunar fárra, auðsöfnun sem byggir á að þrýsta fjölda fólks niður í fátækt og kippa fótunum undan efnahagslegri stöðu þeirra hópa sem standa veikast fyrir. Leigumarkaðurinn á Íslandi er skömm stjórnvalda og samfélagsins alls. Útgáfa reiknivélar viðmiðunarverðs leigu er lítið skref í átt til siðaðri leigumarkaðar,“ segir í yfirlýsingu Samtaka leigjenda.\r\n\r\n„Leigjendur geta valið sitt hverfi eða byggðarlag í reiknivélinni, slegið inn stærð íbúðar og ásigkomulag og þannig séð hvernig leiga þeirra fellur að raunveruleika reiknivélarinnar, hversu mikið leigusalinn okrar á þeim. Leigusalar sem vilja ekki taka þátt í stríðinu gegn leigjendum geta slegið inn byggðarlag, hverfi og stærð húsnæðis og séð hvert eðlilegt leiguverð er, sanngjarnt verð sem tryggir leigusala ávöxtun en leigjendum einnig skaplegt líf.“\r\n\r\nReiknivélin nær yfir öll svæði á landinu þar sem sala eigna er nógu mikil og ör til að skila raunhæfu viðmiðunarverði. Sama á við stærð húsnæðis. Það er t.d. of lítil sala á stúdíóíbúðum til að raunhæft sé að hafa þær með og sala á íbúðum í mörgum fámennari bæjum og sveitum er of lítil til að hægt sé að byggja á henni. Notendur sem búi í eða eiga húsnæði sem fellur ekki að reiknivélinni verða að beita nálgun með því að skoða nálægar byggðir og húsnæði sem er sambærilegt. Það sama á við um sérbýli, reiknivélin miðar við fjölbýli svo notendur geta valið að húsnæðið sé í góðu ástandi til að vega inn kostina við sérbýlið.\r\n\r\n„Stjórn samtaka leigjenda hvetur alla leigjendur og leigusala til að nota reiknivélina og kynna hana fyrir sem flestum. Við þurfum að siða leigumarkaðinn. Reiknivélin er skref í þá átt,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nHér má sjá reiknivélina: <a href=\"https://leigjendasamtokin.is/reiknivel/\">https://leigjendasamtokin.is/reiknivel/</a>",
  "innerBlocks": []
}
Reiknivél fyrir húsaleigu - Skessuhorn