
Áburði til bænda á Snæfellsnesi skipað upp í Stykkishólmshöfn á síðasta ári. Ljósm. sá.
Greiða út um mánaðamótin áburðarstuðning til bænda
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um ráðstöfun 700 milljóna króna framlags í fjárlögum 2022 til að koma til móts við aukinn kostnað bænda vegna áburðarkaupa. Áburður á alþjóðavísu hefur hækkað um 93% frá síðasta ári. Áætluð hækkun hérlendis frá síðasta ári er um 87% samkvæmt mati Hagstofunnar fyrir verðlagsgrundvöll kúabús. Matvælaráðuneytið gerir ráð fyrir að verja 650 milljónum króna í beinan stuðning við bændur og 50 milljónir í sérstakt átak um bætta nýtingu áburðar og leiðir til að draga úr notkun hans sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) verður falið að framkvæma samkvæmt sérstökum samningi þess efnis.\r\n\r\n650 milljónum verður varið til greiðslu álags á jarðræktarstyrki og landgreiðslur sem greiddar voru árið 2021 samkvæmt rammasamningi landbúnaðarins og jarðræktarstyrki samkvæmt garðyrkjusamningi á árinu 2021. Alls fengu 1.534 bú slíkar greiðslur á liðnu ári vegna ræktunar á samtals 91.610 hekturum. Áætlað er að álagsgreiðslan þýði um það bil 79% álag á greiðslurnar 2021. Gætt verður sérstaklega að búum sem nýir ábúendur hafa tekið við eftir að greiðslan 2021 fór fram.\r\n\r\n„Með þessum aðgerðum komum við til móts við bændur og þá erfiðu stöðu sem þeir standa frammi fyrir. Við höfum lagt áherslu á að fjármunirnir skili sér sem fyrst til bænda og á sem einfaldastan hátt. Með þessari útfærslu náum við því fram. Við höfum átt gott samstarf við Bændasamtökin vegna málsins. Ég býst við því að greiðslurnar verði afgreiddar strax um næstu mánaðamót,“ segir Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra í tilkynningu.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51016\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51016 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Greida-strax-studning-til-baenda-vegna-haekkunar-aburdaverds-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Áburðarstæður á landfyllingu á Akranesi. Ljósm. mm.[/caption]",
"innerBlocks": []
}