Fréttir

true

Félagsheimilið Árblik í Dölum til leigu

Dalabyggð auglýsir félagsheimilið Árblik í Dölum til leigu en þetta kemur fram á vefsíðu Dalabyggðar. Þar segir að rekstur í Árbliki sé spennandi verkefni fyrir hugmyndaríkan og nýjungagjarnan einstakling og frábært tækifæri fyrir núverandi íbúa eða þann sem vill breyta til og búa í vinalegu sveitarfélagi sem er margrómað fyrir kyrrð og náttúrufegurð. Tegund rekstrar/þjónustu…Lesa meira

true

Mesti afli ársins barst að landi milli lægða – myndasyrpa

Miðvikudaginn 19. janúar gerði blíðviðri á og við Snæfellsnes eftir sannkallaða lægðasúpu. Þá héldu allflestir bátar á sjó og metafli á þessu ári barst á land í Snæfellsbæ, eða alls 415 tonn í Ólafsvík og Rifi. Í Ólafsvík var landað 167 tonum og 248 tonnum í Rifi. Þar af var línubáturinn Rifsnes SH með 77…Lesa meira

true

Kennsla hefst í Brekkubæjarskóla að nýju eftir helgi

Skólastarf hefst að nýju í Brekkubæjarskóla eftir helgi en vegna loftgæða og vinnu við hreinsun eftir brunann 13. janúar síðastliðinn var engin kennsla í skólanum í þessari viku. Í tilkynningu frá Brekkubæjarskóla segir að undanfarna daga hafi stjórnendur og margir starfsmenn unnið inni í skólanum til að kanna loftgæði í húsinu og þau hafi lagast…Lesa meira

true

Fangaverðir lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála

„Fangavarðafélag Íslands (FVFÍ) harmar þann atburð sem átti sér stað í fangelsinu á Hólmsheiði laugardaginn 15. janúar síðastliðinn, þegar fangi réðist með hrottalegum hætti að fangavörðum með alvarlegum afleiðingum fyrir fangaverði. Það er krafa Fangavarðafélags Íslands að verulegar breytingar verði að eiga sér stað á vistun einstaklinga sem eiga við geðræn veikindi að stríða. Slíkir…Lesa meira

true

Flutti salt til útgerðarstaða á Snæfellsnesi

Norska flutningaskipið Wilson Perth kom frá Njarðvík til hafnar í Ólafsvík í gær með saltfarm. Í Ólafsvík var skipað upp um 1500 tonnum til útgerðarfyrirtækja í Snæfellsbæ. Þaðan fer skipið til Grundarfjarðar og loks Stykkishólms í sömu erindagjörðum. Vel hefur aflast á Snæfellsnesi í þessum mánuði og því gengið vel á saltbirgðir hjá þeim fiskverkunarfyrirtækjum…Lesa meira

true

Fyrrum formaður Eflingar gefur að nýju kost á sér

Líkur eru á að hressilega verði tekist á í baráttunni um formennsku í Eflingu stéttarfélagi. Sólveig Anna Jónsdóttir, sem sagði af sér formennsku í félaginu á síðasta ári, ætlar nú að gefa kost á sér að nýju til formennsku í félaginu. Hún segir fjölda áskorana frá félagsmönnum ástæðu þess að hún ætli fram að nýju.…Lesa meira

true

Tölur um fjölda smitaðra svipaðar milli daga

Lögreglan á Vesturlandi birti fyrir stundu nýjar tölur yfir fjölda smitaðra og þá sem eru í einangrun í landshlutanum. Þær eru svipaðar og daginn áður. Nú eru 304 í einangrun á Vesturlandi með Covid-19 og 225 í sóttkví. Á Akranesi eru 156 í einangrun og 144 í sóttkví; í Borgarbyggð eru 108 í einangrun og…Lesa meira

true

Létt verður á takmörkunum í áföngum

Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns, nándarregla verður einn metri, krár og skemmtistaðir mega opna að nýju og opnunartími þeirra og annarra veitingastaða verður lengdur um tvær klukkustundir. Heimilt verður að halda sitjandi viðburði fyrir 500 manns að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Takmarkanir í skólum verða að mestu óbreyttar. Þetta er megininntak breytinga í reglugerð um samkomutakmarkanir…Lesa meira

true

Lífshlaupið hefst í næstu viku

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til margra. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60…Lesa meira

true

Héldu þorrablót í heita pottinum

Pottormar, sem hittast reglulega í heita pottinum í sundlauginni á Jaðarsbökkum á Akranesi, héldu í morgun árlegt þorrablót sitt. Komu þar saman og snæddu dögurð klukkan sex. Eins og sést fór vel á með mannskapnum og maturinn hefur aldrei smakkast betur. Hér eru þau Heiðbjört Kristjánsdóttir, Sigríður Gróa Kristjánsdóttir, Sunna Tryggvadóttir, Lilja Högnadóttir, Valdimar Hallgrímsson…Lesa meira