
Guðmundur Gunnlaugsson á línubátnum Signýju HU að byrja löndum. Ljósmyndir: Alfons Finnsson.
Mesti afli ársins barst að landi milli lægða – myndasyrpa
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Miðvikudaginn 19. janúar gerði blíðviðri á og við Snæfellsnes eftir sannkallaða lægðasúpu. Þá héldu allflestir bátar á sjó og metafli á þessu ári barst á land í Snæfellsbæ, eða alls 415 tonn í Ólafsvík og Rifi. Í Ólafsvík var landað 167 tonum og 248 tonnum í Rifi. Þar af var línubáturinn Rifsnes SH með 77 tonn og netabáturinn Bárður með 39 tonn og dragnótarbáturinn Magnús SH með 22 tonn, en aðrir voru með minna. Að sögn hafnarvarðar í Rifi voru línubátar almennt með góðan afla.\r\n\r\nÍ Ólafsvík var netabáturinn Ólafur Bjarnason með 28 tonn, dragnótarbáturinn Gunnar Bjarnason með um 15 tonn og dragnótarbáturinn Guðmundur Jensson var með 12,6 tonn og þar af var karfi fimm tonn. Að sögn Illuga Jónassonar skipstjóra var meðalverð á karfanum þennan dag 728 krónur sem er hærra verð en fékkst fyrir þorskinn. Illugi var því heldur betur ánægður með verðið á karfanum og sagði; „það var góð EBITA í þessum róðri,“ og brosti sínu breiðasta.\r\n\r\nMikið líf er við hafnirnar þegar vel veiðist og margir bátar á sjó í glennunum milli lægða. Því var nóg að gera hjá löndunarmönnum markaðanna og í slægingarþjónustunum tveimur sem eru í Snæfellbæ. Það þurfti að flokka og slægja fiskinn og unnið langt fram á nótt við þá vinnu. Fréttaritari Skessuhorns kíkti á hafnirnar í Snæfellsbæ og tók púlsinn á sjómönnum þegar þeir voru í óða önn að landa og ditta að dragnótinni, en næturnar vilja taka upp á því að rifna við veiðarnar og þá þarf handlagna sjómenn til þess að bæta þær.\r\n\r\n[gallery size=\"large\" ids=\"50659,50660,50661,50662,50663,50664,50665,50666,50667,50668,50669\"]",
"innerBlocks": []
}