{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Fangavarðafélag Íslands (FVFÍ) harmar þann atburð sem átti sér stað í fangelsinu á Hólmsheiði laugardaginn 15. janúar síðastliðinn, þegar fangi réðist með hrottalegum hætti að fangavörðum með alvarlegum afleiðingum fyrir fangaverði. Það er krafa Fangavarðafélags Íslands að verulegar breytingar verði að eiga sér stað á vistun einstaklinga sem eiga við geðræn veikindi að stríða. Slíkir einstaklingar eru bæði starfsfólki fangelsanna og öðrum föngum hættulegir. Ítrekað hefur það komið upp í fangelsum að andlega veikir einstaklingar ráðist á og veiti öðrum áverka. Bæði starfsfólki og samföngum,“ segir í bréfi félagsins til hlutaðeigandi ráðherra, fangelsismálastjóra og Sameykis stéttarfélags. Yfirlýsingin var jafnframt send fjölmiðlum.\r\n\r\nÍ fyrstu grein í lögum um fullnustu refsinga segir: „Markmið laga þessara er að fullnusta refsinga fari fram með öruggum og skilvirkum hætti og að sérstök og almenn varnaðaráhrif refsinga séu virk“. „Með þessu er verið að segja að það eigi að tryggja öruggt vinnuumhverfi innan fangelsanna og að allur aðbúnaður eigi að styðja við að markmið laganna náist. Fangaverðir hafa í langan tíma bent Fangelsismálastofnun (FMS) á að öryggi og aðbúnaður í fangelsum væri ábótavant þar sem fjölgað hafi andlega veikum einstaklingum í fangelsum landsins. Því hafi ekki fylgt fjölgun starfsmanna né fræðsla í meðhöndlun slíkra einstaklinga. Jafnframt eru fangelsi landsins ekki hönnuð eða búin til að sinna slíkum einstaklingum. Menntun og þjálfun fangavarða er í dag miðuð við að halda uppi öryggi á vinnustað, eiga uppbyggileg samskipti og búa fanga til daglegs lífs eftir afplánun. Geðdeild Landsspítalans hefur ítrekað neitað að taka við föngum sem glíma við geðræna kvilla því að þeir eiga við áunna fíkniefnatengd geðræn veikindi að stríða. Það er skoðun fangavarða að fangelsi landsins hafi ekki þá aðstöðu til að hjálpa þessum mönnum á þann hátt sem ætlast er til,“ segir í bréfinu.\r\n\r\nÍ fangelsum landsins hefur undirmönnun verið viðvarandi í mörg ár. „FVFÍ hefur ítrekað bent FMS og Sameyki á undirmönnun, en því miður hefur þar verið talað fyrir daufum eyrum. Of fáir fangaverðir eru á vöktum. Með því er öryggi starfsmanna og fangelsanna stefnt í hættu. Má meðal annars nefna að á Hólmsheiði eru þrír starfsmenn á næturvakt með allt að 50 fanga og eins og dæmi sýna, sumir þeirra mjög veikir og hættulegir. Einnig má nefna að þrátt fyrir alvarlega atburði á Kvíabryggju er einungis einn fangavörður þar á vakt á nóttunni með 22 fanga. Við breytingar á styttingu vinnuviku hafi þessi undirmönnun aukist þar sem ekki hafi fengist heimildir til að fjölga starfsfólki eins og þörf er á. Það hefur skapað aukið álag á starfsmenn og er svo komið að veikindi, vanlíðan og starfsleiði eru orðinn áberandi. FVFÍ skorar á ráðherra innanríkis og heilbrigðis, Fangelsismálastofnun og Sameyki að stíga strax inn og leysa þá stöðu sem er til staðar í fangelsum landsins og tryggja viðunandi mönnun og öryggi fyrir alla sem þar eru.“",
"innerBlocks": []
}
Fangaverðir lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála - Skessuhorn