Félagsheimilið Árblik í Dölum. Ljósm. dalir.is

Félagsheimilið Árblik í Dölum til leigu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Dalabyggð auglýsir félagsheimilið Árblik í Dölum til leigu en þetta kemur fram á vefsíðu Dalabyggðar. Þar segir að rekstur í Árbliki sé spennandi verkefni fyrir hugmyndaríkan og nýjungagjarnan einstakling og frábært tækifæri fyrir núverandi íbúa eða þann sem vill breyta til og búa í vinalegu sveitarfélagi sem er margrómað fyrir kyrrð og náttúrufegurð.\r\n\r\nTegund rekstrar/þjónustu sem verður í Árbliki er í höndum rekstraraðila og býður húsið upp á möguleika fyrir sýningarrými, viðburðaaðstöðu, vinnustofur og/eða veitingasölu svo eitthvað sé nefnt. Árblik er félagsheimili staðsett í Miðdölum, um 130 km frá Reykjavík og 14 km frá Búðardal. Húsið er vel stórt, á tveimur hæðum og fyrir utan er að finna tjaldsvæði.\r\n\r\nGert er ráð fyrir að samið verði um leigu til þriggja ára með möguleika á framlengingu um tvö ár til viðbótar.",
  "innerBlocks": []
}
Félagsheimilið Árblik í Dölum til leigu - Skessuhorn