Fréttir

true

Lausar lóðir í Melahverfi

Hvalfjarðarsveit auglýsir í Skessuhorni vikunnar eftir umsóknum í lausar byggingarlóðir við Lyngmel í Melahverfi. Um er að ræða 14 lóðir fyrir einnar hæðar einbýlishús, parhús og raðhús með samtals 14 íbúðum. Frestur til að skila inn umsóknum er til 8. febrúar nk. Sjá nánar auglýsingu í blaðinu – og hér:Lesa meira

true

Slæmt veður og færð á fjallvegum

Gul viðvörun er í gildi í dag fyrir allt norðanvert landið. Á spásvæðinu Strandir og Norðurland vestra er gert ráð fyrir norðan 13-18 m/s, snjókomu með skafrenningi og lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Vegagerðin bendir á að það lægir um tíma yfir Holtavörðuheiði og Bröttubrekku síðdegis eða frá kl. 17-21. Annars verður allhvasst og víða…Lesa meira

true

Barn að flýta sér í heiminn

Í liðinni viku voru lögreglumenn á eftirlitsferð í Hvalfjarðargöngunum. Þar voru þeir stöðvaðir af ökumanni sem tjáði þeim að konan hans væri komin af stað í fæðingu. Hún væri gengin með í 39 vikur, búin að missa vatnið og með miklar hríðir. Ekið var á undan bifreiðinni í forgangi upp á Akranes með konuna í…Lesa meira

true

Félagsheimilið Árblik í Dölum til leigu

Dalabyggð auglýsir félagsheimilið Árblik í Dölum til leigu en þetta kemur fram á vefsíðu Dalabyggðar. Þar segir að rekstur í Árbliki sé spennandi verkefni fyrir hugmyndaríkan og nýjungagjarnan einstakling og frábært tækifæri fyrir núverandi íbúa eða þann sem vill breyta til og búa í vinalegu sveitarfélagi sem er margrómað fyrir kyrrð og náttúrufegurð. Tegund rekstrar/þjónustu…Lesa meira

true

Drop in brúðkaup fyrir þá sem vilja muna daginn

Garða- og Saurbæjarprestakall ætlar í febrúar að bjóða upp á svokölluð „drop in“ brúðkaup í Akraneskirkju, nánar tiltekið þriðjudaginn 22. febrúar 2022. „Eruð þið búin að stefna að brúðkaupi, en aldrei orðið af því, kannski út af covid eða bara einhverju allt öðru? Þann 22.02.2022 verður boðið upp á drop in brúðkaup í Akraneskirkju, einföld…Lesa meira

true

Tvær nýjar hljóðbækur frá MTH útgáfu á Akranesi

Í vikubyrjun komu út á hljóðbók skáldsögurnar „Minningar elds“ og „Ár bréfberans“ eftir Kristján Kristjánsson rithöfund. Geta hlustendur nálgast þær á Storytel en það er Kristján Franklín Magnús sem les. Minningar elds kom út árið 1989 og er fyrsta skáldsagan sem Kristján sendi frá sér. Segir frá sérkennilegri vináttu tveggja manna, Axels og Orra, þar…Lesa meira

true

Varnaræfingin Norður-Víkingur í Hvalfirði í apríl

Varnaræfingin Norður Víkingur verður haldin dagana 2.-14. apríl næstkomandi en þetta er í fyrsta sinn sem æfingin hefur verið haldin síðan árið 2011. Um er að ræða tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna en einn helsti hápunktur æfingarinnar verður æfing landtöku landgönguliða bandaríska sjóhersins af sjó. Þótti besti staðurinn fyrir þann hluta æfingarinnar vera Miðsandur í…Lesa meira

true

Nýtt met í smitum innanlands – 309 í einangrun á Vesturlandi

Í gær var sett nýtt met í innanlandssmitum þegar 1.567 voru greindir með kórónuveiruna, en 43 til viðbótar voru greindir á landamærunum. 35 liggja á sjúkrahúsi með veiruna og þar af eru þrír á gjörgæslu og tveir þeirra í öndunarvél. Þá lést kona á níræðisaldri af völdum Covid-19 í gær og hafa nú 46 látist…Lesa meira

true

Þjálfaramálin hjá ÍA skýrast mjög fljótlega

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá ÍA, lét óvænt af störfum í gær og tók boði Knattspyrnusambands Íslands um starf aðstoðarlandsliðsþjálfara A landsliðs karla. Þetta kom fram í tilkynningu frá Knattspyrnufélagi ÍA þar sem kom fram að á næstu dögum yrði ákveðið hver tæki við af Jóhannesi Karli. Á meðan mun þjálfarateymi…Lesa meira