Kennsla hefst í Brekkubæjarskóla að nýju eftir helgi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skólastarf hefst að nýju í Brekkubæjarskóla eftir helgi en vegna loftgæða og vinnu við hreinsun eftir brunann 13. janúar síðastliðinn var engin kennsla í skólanum í þessari viku. Í tilkynningu frá Brekkubæjarskóla segir að undanfarna daga hafi stjórnendur og margir starfsmenn unnið inni í skólanum til að kanna loftgæði í húsinu og þau hafi lagast mjög mikið enda mikil vinna átt sér stað í að hreinsa allan skólann.\r\n\r\n„Því miður náum við ekki öllum árgöngum skólans inn í skólann á mánudaginn því enn er nokkuð um framkvæmdir í stofum nokkurra árganga. En þrátt fyrir það finnst okkur mikilvægt að koma skólastarfinu í gang að mestu leyti. Mesta raskið er á jarðhæð skólans og hún lítur illa út. Búið er að taka niður allar loftaplötur á hæðinni og fjarlægja einangrun af sumum veggjum. Það er búið að hreinsa svæðið en á eftir að ganga frá lögnum og loftum til bráðabirgða. Hreinsun á smíðastofunni og nánasta umhverfi hennar stendur ennþá yfir og því er einhver brunalykt ennþá á því svæði. Skólastarf hefst því samkvæmt stundaskrá frá og með mánudeginum 31. janúar.“",
"innerBlocks": []
}
Kennsla hefst í Brekkubæjarskóla að nýju eftir helgi - Skessuhorn