Tölur um fjölda smitaðra svipaðar milli daga

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Lögreglan á Vesturlandi birti fyrir stundu nýjar tölur yfir fjölda smitaðra og þá sem eru í einangrun í landshlutanum. Þær eru svipaðar og daginn áður. Nú eru 304 í einangrun á Vesturlandi með Covid-19 og 225 í sóttkví. Á Akranesi eru 156 í einangrun og 144 í sóttkví; í Borgarbyggð eru 108 í einangrun og 54 í sóttkví; í Snæfellsbæ eru 16 í einangrun og sjö í sóttkví; í Grundarfirði eru 12 í einangrun og 14 í sóttkví; í Stykkishólmi eru 8 í einangrun og fjórir í sóttkví og loks í Dölum eru fjórir í einangrun og tveir í sóttkví.\r\n\r\nÞað ber að taka fram að sóttvarnayfirvöld benda nú fólki á að fara ekki í sýnatöku að nauðsynjalausu miðað við gildandi sóttvarnareglur. Það gæti þýtt að færri eru nú að greinast með veiruna og einhverjir sem ekki fara í próf þótt þeir séu með einkenni. Með afléttingu sóttvarnaregla í áföngum, sem kynntar voru fyrr í dag, er hreinlega reiknað með að ómíkron afbrigði veirunnar dreifist meðal landsmanna og krossa yfirvöld fingur um að fólk veikist ekki alvarlega og að heilbrigðiskerfið þoli aukinn fjölda smitaðra. Með þessari áætlun er vonast til að hjarðónæmi hafi myndast hjá landsmönnum eftir 6-8 vikur þannig að aflétta megi öllum sóttvarnareglum vegna Covid-19.",
  "innerBlocks": []
}
Tölur um fjölda smitaðra svipaðar milli daga - Skessuhorn