Fréttir

true

Lögreglan á Suðurnesjum lokar Facebook síðu sinni í dag

Lögreglan á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka Facebook síðu embættisins í dag og hefur skrifað það sem kallað er lokafærsla á síðuna. „Öflug persónuvernd er lögreglunni á Suðurnesjum kappsmál og leggjum við áherslu á að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við kröfur persónuverndarlaga. Lögum samkvæmt ber okkur að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga sé með…Lesa meira

true

Vekja athygli á fyrirtækjum á landsbyggðinni

Miðvikudaginn 19. janúar næstkomandi verður #ruralbusiness dagurinn á samfélagsmiðlum. Þennan dag er almenningur hvattur til að vekja athygli á því frábæra fólki, þjónustu og vörum fyrirtækja á landsbyggðinni með því að segja frá sínum uppáhalds fyrirtækjum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #ruralbuisness eða #landsbyggdafyrirtaeki. Markmiðið er að vekja athygli á fyrirtækjum á landsbyggðinni og styðja þannig…Lesa meira

true

Lambhúshettur þema Prjónagleðinnar 2022

Prjónagleðin verður haldin á Blönduósi helgina 10. – 12. júní í sumar og að venju er blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni af því tilefni. „Að þessu sinni gengur samkeppnin út að að hanna og prjóna lambhúshettu á fullorðinn. Þema keppninnar er huldufólk samtímans og ber að hafa það í huga við hönnunina, sem á að…Lesa meira

true

Fyrsta loðnan á Akranes

Venus NS-150 kom til hafnar á Akranesi í morgun með um tvö þúsund tonn af loðnu sem veiddist norður af Húnaflóa og Vestfjörðum. Þetta er jafnframt fyrsta loðnan sem berst til hafnar á Akranesi á vertíðinni. Af þessu tilefni færði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri áhöfninni á Venusi tertu eins og hefð er fyrir við vertíðarbyrjun.…Lesa meira

true

Gular viðvaranir framundan

Gul veðurviðvörun tekur gildi við Breiðafjörð og Faxaflóa í kvöld og stendur fram á nótt en þá á að lægja. Önnur gul viðvörun tekur svo við snemma í fyrramálið og er í gildi fram að hádegi á fimmtudag. Við Faxaflóa tekur fyrri viðvörunin gildi klukkan 21:00 í kvöld og stendur yfir til klukkan 2:00 í…Lesa meira

true

Jarðskjálfti suðvestan við Húsafell

Síðustu sólarhringa hefur nokkur jarðskjálftavirkni verið suðvestur af Húsafelli. Klukkan 9:14 í morgun mældist jarðskjálfti 3,1 að stærð um 18 km suðvestur af Húsafelli, vestan við Ok, og fannst skjálftinn vel á Húsafelli. Í samtali við Rúv segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, að ekki sé hætta á eldgosi á þessu svæði. Hún…Lesa meira

true

Nova prýðir dagatal Blindrafélagsins

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, gefur út dagatal fyrir árið 2022 með myndum af leiðsöguhundinum Novu. Tilgangurinn með útgáfu þess er að fjármagna kaup og þjálfun leiðsöguhunda fyrir blinda einstaklinga. Árið 2021 náði Blindrafélagið að styrkja kaup á þremur leiðsöguhundum. „Blindrafélagið telur mikilvægt að tryggja stöðugt framboð leiðsöguhunda fyrir blinda hér á landi,…Lesa meira

true

Hátt hlutfall íbúa í sóttkví eða einangrun

Eins og sakir standa eru um 2,8% íbúa á Vesturlandi ýmist í sóttkví eða einangrun vegna Covid-19. Þremur færri eru í einangrun í dag en voru í gær, eða 213. Að auki eru 223 í sóttkví. Nú eru flestir í einangrun á starfssvæði heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi. Þar hefur veiran m.a. stungið sér niður á…Lesa meira

true

Skallagrímur með sigur á Hrunamönnum

Skallagrímur gerði sér ferð í gærkvöldi á Flúðir í Hrunamannahreppi þar sem þeir mættu heimamönnum í 1. deild karla í körfuknattleik. Aðeins tveimur stigum munaði á liðunum fyrir leik en liðin voru í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar, Skallagrímur með tíu stig og Hrunamenn með átta. Hrunamenn skoruðu fyrstu þrjú stig leiksins en Skallagrímsmenn tóku…Lesa meira

true

Vetrarlægð í vændum

Í dag verður suðvestanátt á landinu, víða 13-18 m/s. Skúrir eða él, þó síst norðaustanlands, en rigning eða slydda í flestum landshlutum um tíma upp úr hádegi. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig. Síðan gengur í suðvestan 18-25 á morgun, hvassast verður norðvestan til á landinu. Úrkomulítið á Austurlandi, annars éljagangur. Hiti í kringum frostmark.…Lesa meira