Nova. Ljósm. Ólöf Gyða Risten.

Nova prýðir dagatal Blindrafélagsins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, gefur út dagatal fyrir árið 2022 með myndum af leiðsöguhundinum Novu. Tilgangurinn með útgáfu þess er að fjármagna kaup og þjálfun leiðsöguhunda fyrir blinda einstaklinga. Árið 2021 náði Blindrafélagið að styrkja kaup á þremur leiðsöguhundum.\r\n\r\n„Blindrafélagið telur mikilvægt að tryggja stöðugt framboð leiðsöguhunda fyrir blinda hér á landi, eins og raunin er í nágrannalöndum okkar, enda hafa þeir margsannað mikilvægi sitt. Dagatalið er sent heim til allra velunnara félagsins auk þess er hægt að kaupa dagatalið í vefverslun Blindrafélagsins, Bónus, Krónunni, Nettó og A4,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nÁ Íslandi eru starfandi tólf leiðsöguhundar fyrir blinda fyrir tilstuðlan Blindrafélagsins og er þörf fyrir mun fleiri. Þjálfun leiðsöguhunds fyrir blindan einstakling er mjög sérhæfð og tímafrek. Hver leiðsöguhundur getur unnið á bilinu 8-10 ár og allan þann tíma, á hverjum einasta degi, bætir hundurinn lífsgæði notanda síns umtalsvert.",
  "innerBlocks": []
}
Nova prýðir dagatal Blindrafélagsins - Skessuhorn