{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag verður suðvestanátt á landinu, víða 13-18 m/s. Skúrir eða él, þó síst norðaustanlands, en rigning eða slydda í flestum landshlutum um tíma upp úr hádegi. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig. Síðan gengur í suðvestan 18-25 á morgun, hvassast verður norðvestan til á landinu. Úrkomulítið á Austurlandi, annars éljagangur. Hiti í kringum frostmark.\r\n\r\nVegagerðin bendir á að bakki með snjó mun ganga yfir suðvestanvert landið í kvöld og skyggni verður lítið t.d. austur fyrir fjall á milli kl. 20 og 23. Á morgun verður víða stormur með éljagangi. Skafrenningur og blint, ekki síst á Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði.",
"innerBlocks": []
}