Fréttir

true

Þorrablót Skagamanna í streymi

Hið árlega Þorrablót Skagamanna verður laugardaginn 22. janúar næstkomandi og verður í streymi eins og í fyrra sökum samkomutakmarkana. Ef að líkum lætur verður boðið upp á veglegt happdrætti, valinn Skagamaður ársins, Skagaskaupið sýnt og vafalaust margt fleira sem verður til skemmtunar. Miðasala hefst á næstu dögum.Lesa meira

true

Fjölgar í hópi smitaðra á Vesturlandi

Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi fjölgar milli daga um 35 með Covid-19 á Vesturlandi. Alls eru 180 í einangrun í landshlutanum og 132 í sóttkví. Hlutfallslega er langmest fjölgun smitaðra í Snæfellsbæ milli daga, þar sem 33 eru nú með veiruna og 21 að auki í sóttkví. Þessi fjölgun hafði m.a. þau áhrif í…Lesa meira

true

Fyrri hæðin að rísa í nýju fjölbýlishúsi

Nú eru framkvæmdir við Grundargötu 12-14 í Grundarfirði á miklu skriði og byrjað að reisa veggi neðri hæðar hússins. Myndarlegur krani er kominn sem hífir einingarnar á sinn stað. Þarna verða níu íbúðir á frábærum stað í bænum.Lesa meira

true

Alþjóða dagur punktaleturs er í dag

Í dag, 4. janúar, er alþjóðadagur punktaleturs, eða blindraleturs eins og flestir kalla það. Viðburðurinn er haldinn ár hvert til að auka vitund um mikilvægi blindraleturs sem samskiptatækis til að auka mannréttindi blindra og sjónskertra. Það var Frakkinn Louis Braille (1809-1852) sem var blindur á báðum augum. Þegar hann var 16 ára gamall fann hann…Lesa meira

true

Fyrsta barn ársins fæddist á sunnudaginn

Fyrsta barn ársins á Vesturlandi er stúlka sem kom í heiminn á Akranesi klukkan 22:16 á sunnudagskvöld, 2. janúar. Stúlkan vó 3.390 grömm og er 51 sentímetri að lengd og hefur hún fengið nafnið Avróra Mae og foreldrar hennar eru Neilalin Mae Angco Gines og Nikita Kozlov og býr fjölskyldan í Borgarnesi. Fyrir eiga þau…Lesa meira

true

Tólf orður á nýársdag

Tólf voru sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag við látlausa athöfn á Bessastöðum þar sem hver og einn mætti, en ekki hópi. Þau Áslaug Geirsdóttir, Gerður Kristný Guðjónsdóttir, Sigurður Flosason, Bjarni Felixson, Kristín Þorkelsdóttir, Ólafía Jakobsdóttir, Katrín Fjeldsted, Sigurjón Arason og Trausti Valsson mættu. Þrír orðuhafar áttu ekki heimangengt meðal annars vegna veðurs og…Lesa meira

true

Von er á djúpri lægð á fimmtudaginn

Á fimmtudagsmorgun má búast við að djúp lægð komi inn á landið, að því er fram kemur í frétt á blika.is. Þar segir að dýpri lægðir sjáist varla. Um er að ræða lægð sem hefur verið að valda miklu vetrarveðri á austurströnd Bandaríkjanna en lægðin mun svo halda áfram upp með ströndinni og suður fyrir…Lesa meira

true

Starfshópur um blóðtöku hefur vinnu sína

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að fjalla um blóðtöku á fylfullum hryssum. Hópnum er ætlað að skoða starfsemina, regluverkið og eftirlitið í kring um hana. Í hópnum eiga sæti þau Iðunn Guðjónsdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu sem er formaður hópsins, skipuð án tilnefningar, Sigríður Björnsdóttir, yfirdýralæknir í…Lesa meira

true

Árið kvatt í núll gráðum við Látravík

Þau létu ekki kuldann á sig fá þessir hressu sjósundskappar þegar þau fóru í sjóinn í fjörunni við Látravík á Snæfellsnesi á Gamlársdag. Lofthitinn þennan dag var mínus fjórar gráður og sjórinn í kringum núll gráðurnar og auðvitað var pósað fyrir ljósmyndarann að loknu sundi.Lesa meira

true

Lítil breyting í fjölda smitaðra og í sóttkví

Í gær voru 795 kórónaveirusmit greind innanlands. Hér á Vesturlandi er staðan engu að síður að mestu óbreytt frá því á nýársdag, þegar Lögreglan á Vesturlandi birti síðast tölur. Nú eru 145 í einangrun í landshlutanum og 149 í sóttkví. Heldur hefur fækkað í sóttkví á Akranesi þar sem 58 eru nú með veiruna en…Lesa meira