Fréttir

true

Háskólar áhugasamir um aukið samstarf

Allir íslensku háskólarnir sóttu um styrki í verkefnið Samstarf háskóla sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, setti á laggir í haust. Stefnt er að því að úthluta allt að einum milljarði króna á þessu ári, 2022, og sambærilegri upphæð árið 2023 en með þessu er háskólunum veittur fjárhagslegur hvati til að stofna til…Lesa meira

true

Saka starfsmann Hamars um kynþáttaníð

Stjórn körfuknattleiksdeildar ÍA sendi í vikulok frá sér yfirlýsingu vegna óviðeigandi ummæla starfsmanns Hamars í leik Hamars og ÍA í 1. deild karla í vikunni sem leið. „Stjórn körfuknattleiksdeildar ÍA harmar og fordæmir með öllu hegðun starfsmanns á vegum Hamars í leik Hamars og ÍA í 1. deild karla sem átti sér stað í gær.…Lesa meira

true

Forsetahjónin væntanleg í heimsókn á Akranes

Í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupstaðar á þessu ári mun Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid eiginkona hans koma í opinbera heimsókn á Akranes fimmtudaginn 15. desember. Tekið verður á móti forsetahjónunum við Hvalfjarðargöng og þeim fylgt í bæinn. Fyrsti áfangastaður verður aðsetur bæjarskrifstofunnar að Dalbraut 4 þar sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúar…Lesa meira

true

Starfsmannafélag Slökkviliðs Grundarfjarðar gefur eldvarnarkerfi

Starfsmannafélag Slökkviliðs Grundarfjarðar hefur um árabil staðið fyrir fjáröflun með sölu dagatala í Grundarfirði. Í ár er engin breyting þar á en fjármunirnir sem safnast hafa nær eingöngu farið í uppbyggingu á tækjum og búnaði slökkviliðsins og öðrum tengdum málefnum. Til að mynda gaf starfsmannafélagið reykskynjara til allra eldri borgara Grundarfjarðarbæjar í samstarfi við bæjaryfirvöld…Lesa meira

true

Góðir gestir í heimsókn í Grundaskóla

Í gær komu tveir „gamlir“ nemendur Grundaskóla á Akranesi í heimsókn í skólann og ræddu við nemendur og kennara. Hér voru á ferð Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson en þeir eru báðir atvinnuknattspyrnumenn hjá FC Köbenhavn í Danmörku. Þeir félagar héldu skemmtilegan fyrirlestur á sal, ræddu við nemendur um líf sitt sem atvinnumenn…Lesa meira

true

Skagamenn með tap á móti Hamri

Hamar og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Hveragerði. ÍA byrjaði betur í leiknum og komst í 2:8 en þegar leið á fyrsta leikhluta voru heimamenn komnir með tíu stiga forystu, 26:16, og við lok hans var staðan svipuð, 32:24 fyrir Hamar. Um miðjan annan leikhluta…Lesa meira

true

Kaupfélagið bauð til veislu

Það var margt um manninn í Kaupfélagi Borgfirðinga við Egilsholt i Borgarnesi í gærkvöldi, en þá var boðið upp á jólakvöld. Inni voru lifandi tónar þar sem Þóra Sif Svansdóttir söng við undirleik Halldórs Hólm. Starfsfólk í versluninni bauð upp á ilmandi vöfflur og heitt súkkulaði og ýmis jólatilboð voru um búðina. Slökkvilið Borgarbyggðar kom…Lesa meira

true

Báðir ökumenn gengu út úr sínum bílum

Lögreglunni á Vesturlandi barst útkall vegna bílslyss klukkan 15:43 í gær. Þá höfðu lent saman fólksbíll og vörubifreið á Akrafjallsvegi neðan við bæinn Vestri-Reyni. Fjölmennt lið björgunarfólks var sent á vettvang en talið var í fyrstu að um alvarlegt slys væri að ræða. Betur fór þó en á horfðist. Að sögn Ásmundar Kristins Ásmundssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns…Lesa meira