Fréttir

true

„Og svo er maður bara rekinn!“

Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld býr á Hólum í Hvammssveit í Dölum ásamt fjölskyldu sinni en þar rekur hún einnig dýragarð og dýraathvarf. Síðustu rúm tíu ár hefur hún unnið í einu matvöruversluninni sem starfrækt er í Búðardal en sú verslun hefur á þeim tíma verið undir merkjum Samkaupa, sem Samkaup strax, Kjörbúðin og nú Krambúðin.…Lesa meira

true

Eva Björg Ægisdóttir heimsótti FVA

Nemendur, kennarar og aðrir gestir fjölmenntu í sal Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í morgun þar sem Eva Björg Ægisdóttir metsöluhöfundur hélt erindi. Þar sagði hún frá reynslu sinni af því að skrifa bækur og hvernig hún endaði á þeim stað að verða rithöfundur og geta unnið við það eitt. „Ég hélt að maður gæti ekki…Lesa meira

true

Akrafjallsvegur vestan við Akrafjall lokaður í dag

Í dag, miðvikudaginn 9. nóvember á milli kl. 9:00 og 18:00, verður unnið við malbiksviðgerðir á Akrafjallsvegi til vesturs, frá gatnamótum við Hvalfjarðargöng. Veginum verður lokað meðan á framkvæmdum stendur og er hjáleið um Akrafjallsveg norðan við Akrafjall.Lesa meira

true

Sagan um tré ársins við Vesturgötu

Nýverið afhenti skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar umhverfisverðlaun kaupstaðarins fyrir árið 2022. Í flokknum tré ársins sem var einn af fjórum flokkunum sem hlaut verðlaun fékk tré sem stendur við Vesturgötu 63 þau verðlaun í ár. Í umsögn segir að tréð sé staðsett í elsta hluta bæjarins og hafi mátt þola ýmislegt í gegnum tíðina. „Fallegt…Lesa meira

true

Ostar frá MS í Búðardal unnu til alþjóðlegra verðlauna

Ostar sem framleiddir eru á starfsstöð Mjólkursamsölunnar í Búðardal tóku þátt í alþjóðlegri matvælakeppni sem fram fór í Herning í Danmörku um liðna helgi. Nítján ostar voru sendir til keppni í sjö flokkum. Garðar Freyr Vilhjálmsson, framleiðslustjóri MS í Búðardal, segir vörurnar almennt hafa fengið góða dóma. Nokkrir ostar unnu til verðlauna. ,,Þetta er alþjóðleg…Lesa meira

true

Klakkur fjárfesti í flygildi

Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði keypti á dögunum DJI Matrice 30T dróna til viðbótar við tækjakost sveitarinnar. Dróninn er afar fullkominn og hentar vel til leitar. Hann er búinn öflugri myndavél með miklum aðdrætti sem og hitamyndavél sem gegnir lykilhlutverki við leitarstörf. Ljóst er að þetta tæki á eftir að nýtast vel fyrir björgunarsveitirnar á Snæfellsnesi…Lesa meira

true

Íbúafjöldi á Akranesi að nálgast átta þúsund

Íbúar á Vesturlandi voru 17.462 talsins þriðjudaginn 1. nóvember síðastliðinn. Á ellefu mánaða tímabili frá 1. desember 2021 og til 1. nóvember sl. hefur fjölgað í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi, utan Dalabyggðar þar sem fækkar um fjóra á tímabilinu, eða um 0,6%. Athygli vekur að nú vantar einungis 52 upp á íbúafjöldann á Akranesi nái…Lesa meira

true

Bráðaþjónusta efld um allt land með bættum tækjabúnaði

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita heilbrigðisstofnunum utan höfuðborgarsvæðisins 113,5 milljónir króna til kaupa á tækjabúnaði sem styrkir bráðaþjónustu um allt land. Ákvörðunin er byggð á tillögu viðbragðsteymis um bráðaþjónustu. Markmiðið er að auka getu heilbrigðisstofnana til að veita bráðaþjónustu og stuðla að jafnara aðgengi að þjónustunni á landsvísu. Viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu hefur undanfarið…Lesa meira

true

Trommað gegn einelti í Brekkubæjarskóla

Eftir hádegi í dag tóku nemendur Brekkubæjarskóla á Akranesi sig til og trommuðu í takt á skólalóðinni. Tilefnið var Dagur gegn einelti og trommuðu krakkarnir í alls sjö mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar sem þau vilja hafa eineltislausan. Þá var einnig myndaður regnbogi af nemendum í litum regnbogans til þess að tákna fjölbreytileikann…Lesa meira

true

Stofnuð hafa verið Samtök þörungafélaga

„Ísland á mikla möguleika á að verða leiðandi í nýsköpun og framþróun ræktunar og framleiðslu afurða úr þörungum ef rétt er haldið á spöðunum,“ segir í tilkynningu frá nýstofnuðum Samtökum þörungafélaga á Íslandi (e. Algae Association of Iceland, AAI). Fyrsti fyrsti stjórnarfundur hinna nýstofnuðu samtaka fór fram síðastliðinn fimmtudag. Stofnendur félagsins eiga það sameiginlegt að…Lesa meira