Fréttir

true

Hallgrímsdagar að hausti haldnir í fyrsta sinn

Í ár verða í fyrsta sinn haldnir Hallgrímsdagar í Saurbæ í Hvalfirði. Þá verður menningardagskrá í Hallgrímskirkju í Saurbæ dagana 27. -30. október, í tilefni af ártíð Hallgríms Péturssonar (1614 – 1674) en dánardagur hans er 27. október. Ekki er vitað með vissu hver er fæðingardagur Hallgríms og því fær dánardagur hans enn meira vægi.…Lesa meira

true

Forsetahjón á ferð um Vesturland

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid voru á ferð í Borgarfirði í liðinni viku. Í för með þeim voru finnsku forsetahjónin, Sauli Niinistö og Jenni Haukio. Ekið var um Kaldadal frá Þingvöllum, þar sem haldið var á Langjökul og farið ofan í Into the glacier ísgöngin. Leiðsögumaður í ferðinni var Sif Pétursdóttir…Lesa meira

true

Running Tide ræður inn stjórnendur á Akranesi og Grundartanga

Running Tide hefur ráðið inn þrjá nýja stjórnendur en fyrirtækið er með starfsemi á Breið á Akranesi, á Grundartanga og í Reykjavík en það var stofnað fyrir fimm árum síðan í Bandaríkjunum. Fyrirtækið þróar og nýtir tækni og aðferðir sem örva náttúruleg ferli sjávarins í að grípa, binda, og geyma kolefni til langs tíma en…Lesa meira

true

Vökudagar verða settir á Akranesi á morgun

Á morgun fimmtudaginn 27. október klukkan 17:00, verða Vökudagar á Akranesi settir í Tónlistarskólanum á Akranesi. Þar afhendir formaður menningarmálanefndar menningarverðlaun Akraneskaupstaðar en einnig verða árlegar umhverfisviðurkenningar afhentar. Að setningu lokinni verður líkt og síðustu ár listaganga á Akranesi. Í ár eru það 15 listamenn um allan bæ með sýningar eða opnar vinnustofur sem taka…Lesa meira

true

Útgáfu Árbókar Akurnesinga hefur verið hætt

Tveir áratugir eru síðan Árbók Akurnesinga hóf göngu sína og á síðasta ári kom 20. bindi ritsins út. Nú liggur hins vegar fyrir að útgáfu Árbókarinnar verður hætt. „Kristján Kristjánsson ritstjóri og Margrét Þorvaldsdóttir útgefandi þakka greinahöfundum, áskrifendum og auglýsendum órofa tryggð öll þau ár sem auðnaðist að gefa út Árbók Akurnesinga,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Heimsókn nemenda og kennara FSN til Tékklands

Sunnudaginn 18. september síðastliðinn héldu 12 nemendur úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga auk þriggja kennara, til Frenštát pod Radhoštěm í austurhluta Tékklands til að heimsækja kollega sína úr Gymnázium a Střední průmyslová škola elektrotechniky a informatiky. Heimsóknin var liður í verkefni sem skólarnir tveir hafa unnið saman og nefnist „Food for thought,“ og snýr að því að…Lesa meira

true

Vetrarstarf briddsfélagsins byrjað af krafti

Það var létt yfir félögum í Bridgefélagi Borgarfjarðar í gærkvöldi þegar blaðamaður leit við í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Yfirleitt fer starfið rólega af stað fyrst á haustin, en síðan fjölgar jafnt og þétt í hópnum eftir því sem haustönnum lýkur. Í gær var tvímenningur spilaður á sjö borðum. Næstkomandi mánudag verður aftur stakur tvímenningur…Lesa meira

true

Faxaflóahafnir verða aðalbakhjarl frumkvöðlaseturs í Húsi sjávarklasans

Eitt viðamesta verkefni Sjávarklasans þau rösk tíu ár frá því að Hús sjávarklasans var opnað hefur verið að hlúa að frumkvöðlafyrirtækjum með ýmsum hætti. Veigamesti þátturinn hefur verið að skapa samfélag fyrir þessa sprota þar sem þau eiga kost á að hitta aðra frumkvöðla, stærri fyrirtæki og fjárfesta. Sjávarklasinn starfrækir nú rými sem er 120…Lesa meira

true

Framkvæmdir við höfnina á Reykhólum

Fyrir nokkru hófu starfsmenn Borgarverks í Borgarnesi vinnu við að endurbyggja bryggjuna á Reykhólum. Fyrsta verkið, fyrir utan að flytja efni á svæðið, var að opna efnisnámu og sprengja klöpp til að ná í grjót og hreint fyllingarefni til að stækka bryggjuna. Í lok síðustu viku var byrjað að reka niður stálþilið í bryggjuna en…Lesa meira

true

Framkvæmdir hjá Norðuráli upp á 16 milljarða

Framkvæmdir eru nú hafnar við stækkun álverksmiðju Norðuráls á Grundartanga. Ekki stendur þó til að framleiða meira ál, en aukinn hluti framleiðslunnar verður hins vegar notaður í áframvinnslu í nýjum steypuskála sem byggður verður. Ístak er aðalverktaki við framkvæmdirnar en fjöldi annarra fyrirtækja kemur einnig að verkefninu sem áætlað er að kosti um 16 milljarða…Lesa meira