
Bryggjupollarnir og stög sem halda bryggjunni saman. Ljósm. reykholar.is
Framkvæmdir við höfnina á Reykhólum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fyrir nokkru hófu starfsmenn Borgarverks í Borgarnesi vinnu við að endurbyggja bryggjuna á Reykhólum. Fyrsta verkið, fyrir utan að flytja efni á svæðið, var að opna efnisnámu og sprengja klöpp til að ná í grjót og hreint fyllingarefni til að stækka bryggjuna. Í lok síðustu viku var byrjað að reka niður stálþilið í bryggjuna en hún stækkar umtalsvert þegar það er komið á sinn stað. Veðrið var eins og best verður á kosið miðað við árstíma.\r\n\r\nFram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að mikið hafi verið um að vera við höfnina síðasta fimmtudag. Bryggjusmiðirnir voru að störfum, starfsmenn Þörungaverksmiðjunnar að landa þangi úr Gretti og rétt fyrir utan var þangsláttur í gangi á fjórum prömmum. Þó að athafnaplássið á bryggjunni væri ekki mikið fyrir þessi stóru tæki, þá gekk allt snurðulaust fyrir sig og enginn var fyrir neinum.",
"innerBlocks": []
}