
Hér takast á í lokaleik kvöldsins pörin sem höfnuðu í 1. og 3. sæti. Ljósm. mm.
Vetrarstarf briddsfélagsins byrjað af krafti
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það var létt yfir félögum í Bridgefélagi Borgarfjarðar í gærkvöldi þegar blaðamaður leit við í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Yfirleitt fer starfið rólega af stað fyrst á haustin, en síðan fjölgar jafnt og þétt í hópnum eftir því sem haustönnum lýkur. Í gær var tvímenningur spilaður á sjö borðum. Næstkomandi mánudag verður aftur stakur tvímenningur á dagskrá, en mánudaginn 7. nóvember hefst aðaltvímenningur félagsins á slaginu klukkan 20. Hann verður spilaður öll mánudagskvöldin í nóvember en árangur þriggja bestu kvöldanna telur. Nú er svo komið að Bridgefélag Borgarfjarðar er eina félagið sem enn heldur úti reglulegri starfsemi í héraðinu. Af þeim sökum fjölmenna í Logaland áhugasamir spilarar frá Akranesi, Borgarnesi og raunar víðar að. Stjórn BB býður alla áhugasama spilara velkomna.\r\n\r\nÚrslitin í gær urðu þau að Heiðar Baldursson og Logi Sigurðsson báru sigur úr býtum með 59% skori. Ingimundur Jónsson og Anna Heiða Baldursdóttur urðu í öðru sæti með 56,9% en þeir Eyjólfur Kristinn Örnólfsson og Lárus Pétursson vermdu þriðja sætið með 56,3%.",
"innerBlocks": []
}