Fréttir

true

Biðlað til veiðimanna um hófsemi í rjúpnaveiði

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest að veiðitímabil rjúpu verður frá 1. nóvember – 4. desember í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá föstudegi til þriðjudags, frá kl. 12 þá daga sem veiði er heimil og skal veiði eingöngu standa yfir á meðan að birtu nýtur. Ítrekað er að sölubann er…Lesa meira

true

Áhyggjur af ástandi villtra laxastofna

Landssamband veiðifélaga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum af ástandi villtra laxastofna á Vestfjörðum og vestanverðu landinu í ljósi nýjustu frétta um eldislaxa í ám á svæðinu. Landssambandið gagnrýnir stjórnvöld og eftirlitsaðila harðlega fyrir seinagang og vanhæfni í málinu. Meira en helmingur eldislaxar Á vef Matvælastofnunnar þann 13. október…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður óskar eftir að kaupa land af Hvalfjarðarsveit – færsla sveitarfélagamarka

Lönd Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar liggja saman þar sem mörk voru áður við Innri-Akraneshrepp. Fyrir nokkrum mánuðum var jörðin Akrakot auglýst til sölu, en hún er staðsett Hvalfjarðarsveitar megin, nokkuð innan við markalínuna milli sveitarfélaganna. Nú hefur Akraneskaupstaður fest kaup á jörðinni og óskað eftir samkomulagi við Hvalfjarðarsveit um færslu sveitarfélagamarkanna, svo og viðræðum um kaup…Lesa meira

true

Rammaskipulag fyrir Brákarey í smíðum

Í ágúst s.l. staðfesti Borgarbyggð samning við fasteignaþróunarfélagið Festi um gerð rammaskipulags fyrir Stóru Brákarey í Borgarnesi. Fram hafði komið á fundi byggðarráðs nokkru fyrr að Festir og og JVST arkítektar hefðu lýst yfir áhuga á því að leiða vinnu við heildarskipulag í eynni í samstarfi við bæjaryfirvöld. Skessuhorn hafði samband við Róbert Aron Róbertsson…Lesa meira

true

Heimagreiðsla vegna ungbarna 12 mánaða til 3ja ára í Eyja- og Miklaholtshreppi

Foreldrar og forráðamenn barna í Eyja- og Miklaholtshreppi eiga þess nú kost að fá heimagreiðslur vegna barna sinna. Er það samkvæmt ákvörðun hreppsnefndar frá 22. september s.l. Hægt er að sækja um greiðslur frá 12 mánaða aldri barns þar til að það hefur leikskólavist eða verður 3ja ára. Hámarksupphæð greiðslu er 90.000 kr. á mánuði…Lesa meira

true

Jól í skókassa til barna í Úkraínu

Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður og gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt er með að fari í hvern kassa. Gjafirnar eru…Lesa meira

true

Sameina Landgræðsluna og Skógræktina

Á ríkisstjórnarfundi í morgun kynnti Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ákvörðun sína um sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar, þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Ráðherra skipaði starfshóp í maí síðastliðnum sem falið var að greina rekstur stofnananna tveggja, eignaumsýslu og samlegð faglegra málefna auk þess að vinna áhættugreiningu vegna mögulegrar sameiningar. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni í…Lesa meira

true

Tinna Grímarsdóttir Slaufuberi ársins 2022

Fyrsti viðburður Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis í Bleikum október var haldinn síðasta miðvikudagskvöld. Þá var gengið frá Krónuplaninu niður að Akratorgi og boðið upp á léttar veitingar í Landsbankahúsinu þar sem starfsemi félagsins var meðal annars kynnt. Að lokum var Slaufuberi ársins 2022 kynntur og það var að þessu sinni Tinna Grímarsdóttir. Var henni þakkað…Lesa meira

true

Kristín í öðru sæti á boðsmóti í Frakklandi

Kraflyftingakonan Kristín Þórhallsdóttir tók þátt í Girl Power boðsmótinu í kraftlyftingum sem fór fram í Frakklandi á laugardaginn. Alls var tólf keppendum boðið að taka þátt á mótinu og voru veitt peningaverðlaun fyrir verðlaunasæti. Sex sterkustu konur franska landsliðsins tóku þátt auk sex keppenda sem eru í fremstu röð í Evrópu. Markmið mótsins var einnig…Lesa meira

true

Haustmót Glímusambands Íslands

Haustmót og æfingabúðir Glímusambands Íslands fóru fram um síðustu helgi á Hvolsvelli. Öflugur hópur ungmenna frá Vesturlandi tóku þátt í helginni og stóðu sig með prýði. Helstu úrslit voru þessi. Þórarinn Páll Þórarinsson GFD bar sigur úr býtum í sínum flokki og er því Haustmótsmeistari hjá 13 ára strákum en þar lenti Mikael Hall Valdimarsson…Lesa meira