{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður og gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt er með að fari í hvern kassa. Gjafirnar eru sendar til Úkraínu en þar er atvinnuleysi mikið og margir sem búa við slæmar aðstæður og kröpp kjör. Að því er fram kemur á heimasíðu KFUM og KFUK er íslensku skókössunum meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Gjöfunum hefur fjölgað ár frá ári og um síðustu jól voru hátt í fimm þúsund gjafir sendar frá Íslandi í skókössum. Þess er gætt að gjafirnar sé sendar á svæði þar sem áhrifa stríðsins gætir hvað minnst og þangað eru þær sóttar.\r\n\r\nAllir sem vilja geta tekið þátt í verkefninu og hafa undirtektirnar verið frábærar frá því fyrst var farið af stað með verkefnið hér á landi árið 2004. Fyrir þá sem búa á landsbyggðinni er hægt að nálgast upplýsingar um móttökustaði á heimasíðu KFUM og KFUK undir „Móttökustaðir.“ Þá er þar einnig að finna allar upplýsingar um hvernig skuli ganga frá kössunum og hvað skuli setja í þá. Mælt er með vettlingum, sokkum, húfum, treflum, nærfötum, peysum, bolum, tannbursta, tannkremi og fleiru.\r\n\r\nUpplýsingar um frágang skókassanna, gjafir í skókassana og hvað má ekki fara í þá er að finna á vef kfum.is\r\n\r\n<strong>Eftirtaldir eru móttökustaðir KFUM og K á Vesturlandi </strong>og þar er hægt að kaupa staðlaða kassa í nokkrum stærðum, en annars hægt að nota skókassa eins og verið hefur:\r\n\r\n<strong>Akranes: </strong>Tekið verður á móti skókössunum í Safnaðarheimili Akraneskirkju 1.-5. nóvember milli klukkan 10:00 og 15:00. Tengiliðir eru Irena Rut Jónsdóttir (868-1383) og Axel Gústafsson. Hann hefur síma 896-1979.\r\n\r\n<strong>Grundarfjörður</strong>: Tekið verður á móti skókössum í Safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju. Síðasti skiladagur er miðvikudaginn 3. nóvember. Tengiliðir er Anna Husgaard Andreasen í síma 663-0159 og Salbjörg Sigríður Nóadóttir í síma: 896-6650.\r\n\r\n<strong>Stykkishólmur</strong>: Tekið verður á móti skókössum í Stykkishólmskirkju fimmtudaginn 4. nóvember milli kl. 16:30 og 18:00. Tengiliðir eru María Þórsdóttir, sími 845-1270 og Kristín Rós Jóhannsdóttir, sími 893-1558.",
"innerBlocks": []
}